Andri Rúnar gæti verið á leið til Danmerkur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. ágúst 2020 22:30 Hleypið mér út úr þessu partýi. Vísir/Getty
Samkvæmt fjölmiðlum ytra virðist Ólafur Helgi Kristjánsson – nýráðinn þjálfari danska B-deildarliðsins Esbjerg– vilja fá framherjann stóra og stæðilega Andra Rúnar Bjarnason til liðs við félagið. Andri Rúnar er á mála hjá Kaiserslautern í þýsku C-deildinni en hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá félaginu. Eftir að hafa skorað 19 mörk í 35 leikjum með sænska félaginu Helsingborg var Andri Rúnar keyptur til Kaiserslautern síðasta sumar. Bolvíkingurinn Andri hefur verið mikið frá vegna meiðsla síðustu tólf mánuði og lék hann til að mynda aðeins tíu leiki fyrir þýska félagið á nýliðnu tímabili. Það er talið að Ólafur vilji enda martraðardvöl Andra í Þýskalandi og gefa honum tækifæri á að sýna í hvað sér býr í Danmörku. Áður en Andri Rúnar hélt til Svíþjóðar jafnaði hann markamet efstu deildar hér á landi þegar hann skoraði 19 mörk fyrir Grindavík sumarið 2018. Andri Rúnar, sem verður þrítugur á þessu ári, hefur leikið fimm leiki fyrir íslenska A-landsliðið og skorað í þeim eitt mark.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Fleiri fréttir Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Sjá meira