Fótbolti

Zlatan skoraði tvö og lagði upp það þriðja í 3-0 sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Zlatan var sáttur í kvöld.
Zlatan var sáttur í kvöld. vísir/getty

Zlatan Ibrahimovic var frábær í kvöld er AC Milan vann öruggan 3-1 sigur á Sampdoria.

Svíinn kom AC Milan yfir á 4. mínútu og níu mínútur inn í síðari hálfleik lagði hann upp mark fyrir Tyrkjann, Hakan Calhanoglu.

Zlatan var ekki hættur því á 58. mínútu skoraði hann annað mark sitt og þriðja mark sitt eftir stoðsendingu frá Hakan. Lokatölur 3-1 eftir að Sampdoria klóraði í bakkann í uppbótartíma.

AC Milan er í 6. sætinu með 63 stig en liðið hefur nú tryggt sér Evrópusæti. Liðið getur endað í 5. sætinu með hagstæðum úrslitum í leik Torino og Roma í kvöld sem og í síðustu umferðinni.

Birkir Bjarnason var ekki í leikmannahópi Brescia sem tapaði 2-0 fyrir Lazio á útivelli. Brescia er fallið og leikur í ítölsku B-deildinni á næstu leiktíð en Lazio er í 4. sætinu.

Annað mark Lazio skoraði Ciro Immobile sem hefur verið funheitur á tímabilinu en hann hefur skorað 35 mörk í ítölsku úrvalsdeildinni í 37 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×