Rooney tryggði Derby dýrmæt þrjú stig í umspilsbaráttunni Ísak Hallmundarson skrifar 1. júlí 2020 18:15 Spyrnan frá Rooney áðan sem endaði í bláhorninu. Derby County eru komnir í góða stöðu. getty/ Alex Livesey
Derby County vann sinn fimmta leik í röð í ensku B-deildinni þegar liðið heimsótti Preston North End í leik sem hófst kl. 16:00 í dag. Það var enginn annar en Manchester United goðsögnin Wayne Rooney, næstmarkahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi, sem gerði eina mark leiksins. Markið skoraði Rooney beint úr aukaspyrnu á 18. mínútu, fullkomnlega óverjandi spyrna sem endaði vinstra megin í fjærhorninu. Þetta var fyrsta mark Rooney gegn Preston á ferlinum og hefur hann nú skorað gegn 38 liðum af 46 sem hann hefur spilað við í deildarkeppni á Englandi. Stigin þrjú eru dýrmæt fyrir Derby í baráttunni um sæti í ensku úrvalsdeildinni, en með sigrinum fór Derby upp í 7. sæti, stigi á eftir Cardiff í 6. sætinu sem veitir þátttökurétt í umspilinu um úrvalsdeildarsæti. Það væri magnaður árangur hjá Derby að enda í umspilssæti þar sem liðið var lengi vel í neðri hluta deildarinnar á tímabilinu.
Enski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Sjá meira