Arsenal-Man City og Man Utd-Chelsea mætast í undanúrslitum enska bikarsins

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag. vísir/Getty

Manchester City varð fjórða liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum enska bikarsins með 0-1 sigri á Newcastle á St.James´ Park í dag.

Kevin De Bruyne gerði fyrsta mark leiksins með marki úr vítaspyrnu eftir rúmlega hálftíma leik.

Raheem Sterling tvöfaldaði forystu City á 68.mínútu og reyndust 0-2 lokatölur leiksins.

Í hálfleik var dregið í undanúrslitaviðureignirnar og mun Manchester United mæta Chelsea á meðan Manchester City mætir Arsenal.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira