Hólmbert tryggði Álasund fyrsta stig tímabilsins | Emil lét reka sig út af Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. júní 2020 18:15 Hólmbert Aron sá til þess að Álasund er komið á blað í norsku úrvalsdeildinni. Vísir/Nettavisen
Þó nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í norsku úrvalsdeildinni í dag. Hjá Álasund var Daníel Leó Grétarsson eini Íslendingurinn í byrjunarliðinu er liðið fékk Brann í heimsókn. Þeir Davíð Kristján Ólafsson og Hólmbert Aron Friðjónsson hófu leikinn á bekknum. Hólmbert Aron kom af bekknum þegar staðan var orðin 2-1 fyrir Brann. Skömmu síðar kom Davíð Kristján einnig inn á og í kjölfarið hafði Álasund jafnað metin. Markið gerði Hólmbert eftir sendingu Niklas Castro. Lokatölur 2-2 og fyrsta stig Álasund á tímabilinu komið í hús. Liðið er nú með eitt stig þegar þremur umferðum er lokið. Hjá Sandefjörd var Emil Pálsson í byrjunarliðinu er liðið heimsótti Stabæk en Viðar Ari Jónsson hóf leikinn á bekknum. Staðan var 1-0 Stabæk í vil í hálfleik og var Viðar Ari sendur inn á er gestirnir gerðu þrefalda breytingu. Á 48. mínútu fékk Emil gult spjald og aðeins tíu mínútum síðar braut miðjumaðurinn hárprúði aftur af sér og fékk sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt. Sandefjörd tókst ekki að jafna metin enda manni færri og undir lok leiks tvöfaldaði Hugo Vetlesen forystu Stabæk og þar við sat. Lokatölur 2-0 fyrir Stabæk. Var þetta fyrsti leikurinn sem Sandefjörd tapar á tímabilinu en áður hafði liðið unnið einn og gert eitt jafntefli. Liðið er því með fjögur stig þegar þremur umferðum er lokið. Kjartan Henry Finnbogason var í byrjunarliði Vejle sem gerði 1-1 jafntefli við Næstved IF á útivelli í dönsku B-deildinni. Vejle er sem fyrr á toppi deildarinnar en liðið er með átta stiga forystu á Viborg sem er í 2. sæti þegar sjö umferðir eru eftir.
Fótbolti Norski boltinn Danski boltinn Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Sjá meira