Enski boltinn

Minna leik­menn á ýmsar sótt­varnar­reglur eftir að leik­menn Man. City fóru ekki eftir þeim

Anton Ingi Leifsson skrifar
Phil Foden fær ekki að gefa mönnum fimmu á næstunni.
Phil Foden fær ekki að gefa mönnum fimmu á næstunni. Matt McNulty/Getty Images

Dómarar í ensku úrvalsdeildinni munu minna leikmenn ensku deildarinnar á það að hrækja ekki né gefa öðrum leikmönnum „fimmu“ (e. high five) í leikjum helgarinnar.

Leikmönnum voru settar strangar reglur, hvað þeir máttu gera inni á vellinum og hvað þeir máttu ekki, en það voru ekki allir leikmenn sem fóru eftir reglunum er boltinn fór að rúlla á miðvikudaginn.

Phil Foden sást hrækja á vellinum skömmu eftir að hann kom inn á og einnig faðma félaga sína eftir að hann skoraði þriðja mark City í 3-0 sigrinum á Arsenal.

Það var ekki bara Foden sem náðist á mynd vera hrækjandi á völlin því einnig sást Raheem Sterling og nokkrir aðrir leikmenn gera slíkt hið sama.

Félag dómara segir að þeir munu minna leikmenn á þetta fyrir leiki helgarinnar en segja að það komi ekki til greina að spjalda menn fyrir slíkt athæfi.

Heil umferð fer fram um helgina og m.a. á dagskránni er stórleikur Tottenham og Manchester City í kvöld sem og grannaslagur Everton og Liverpool á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×