Pepsi Max kvenna eftir 9 daga: Meisturunum hefur ekki verið spá titlinum síðustu fjögur ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2020 13:30 Systurnar Elísa og Margrét Lára Viðarsdætur með Íslandsbikarinn síðasta haust. Vísir/Daníel Þór Íslandsmótið í knattspyrnu byrjar með opnunarleik Pepsi Max deildar kvenna 12. júní. Það er mikil spenna fyrir því að boltinn fari aftur að rúlla en lengsta undirbúningstímabil í fótboltaheiminum varð enn lengra þökk sé kórónuveirunni. Vísir ætlar að telja niður í fyrsta leik með því að rifja upp eitt og annað tengdu úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Í dag eru 9 dagar í fyrsta leikinn sem verður á milli Vals og KR á Hlíðarenda 12. júní næstkomandi. Valur og Breiðablik voru í sérflokki í Pepsi Max deild kvenna síðasta sumar og það má búast við að öðru hvoru þeirra liða verði spáð Íslandsmeistaratitlinum í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna deildarinnar. Það er samt staða sem liðin vildu kannski forðast ef við skoðun þróun mála undanfarin fjögur tímabil í kvennadeildinni. Fjögur ár í röð hefur það lið sem var spá titlinum ekki tekist að standast pressuna og vinna Íslandsmeistaratitilinn. Síðasta liðið til að gera það voru Blikakonur sumarið 2015 en þær unnu þá deildina sannfærandi með 50 stig af 54 mögulegum og markatöluna 51-4. Breiðablikskonum hefur verið spáð Íslandsmeistaratitlinum tvisvar sinnum síðan en hafa misst af honum í bæði skiptin eða 2016 til Stjörnunnar og svo til Vals í fyrrasumar. Þegar Blikarnir unnu titilinn fyrir tveimur árum þá var þeim spáð fjórða sætinu en Þór/KA titlinum. Valskonum var spáð Íslandsmeistaratitlinum sumarið 2017 en þá endaði Valsliðið í þriðja sætinu og Þór/KA tók Íslandsmeistaratitilinn. Nú er að sjá hvort að það verði áfram jafnslæmt fyrir liðin í titilbaráttunni að vera spáð Íslandsmeistaratitlinum í þessari árlegu spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna deildarinnar. Íslandsmeistaraspá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna 2015-2019: 2015 Breiðablik spáð titlinum (Breiðablik Íslandsmeistari) 2016 Breiðablik spáð titlinum (Stjarnan Íslandsmeistari) 2017 Val spáð titlinum (Þór/KA Íslandsmeistari) 2018 Þór/KA spáð titlinum (Breiðablik Íslandsmeistari) 2019 Breiðablik spáð titlinum (Valur Íslandsmeistari) Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ Handbolti Ógeðslega erfitt og ógeðslega vont en brosir oft í viku á eftir Sport Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Íslenski boltinn „Nú er nóg komið“ Fótbolti Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Enski boltinn Nefna greinar Íslandsmótsins í CrossFit í höfuðið á íslenskum íþróttakonum Sport Arnór Snær snýr aftur heim Handbolti Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Handbolti Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Fótbolti Félagið í greiðslustöðvun en borgaði öll laun degi fyrr Enski boltinn Fleiri fréttir Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Uppgjörið: ÍBV - KA 3-4 | KA tryggði sér Forsetabikarinn þriðja árið í röð Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Vestri og KR mætast á fyrsta degi vetrar: „Vona að það snjói ekki í nótt“ Lárus Orri framlengir á Skaganum „Kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni“ Sjá meira
Íslandsmótið í knattspyrnu byrjar með opnunarleik Pepsi Max deildar kvenna 12. júní. Það er mikil spenna fyrir því að boltinn fari aftur að rúlla en lengsta undirbúningstímabil í fótboltaheiminum varð enn lengra þökk sé kórónuveirunni. Vísir ætlar að telja niður í fyrsta leik með því að rifja upp eitt og annað tengdu úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Í dag eru 9 dagar í fyrsta leikinn sem verður á milli Vals og KR á Hlíðarenda 12. júní næstkomandi. Valur og Breiðablik voru í sérflokki í Pepsi Max deild kvenna síðasta sumar og það má búast við að öðru hvoru þeirra liða verði spáð Íslandsmeistaratitlinum í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna deildarinnar. Það er samt staða sem liðin vildu kannski forðast ef við skoðun þróun mála undanfarin fjögur tímabil í kvennadeildinni. Fjögur ár í röð hefur það lið sem var spá titlinum ekki tekist að standast pressuna og vinna Íslandsmeistaratitilinn. Síðasta liðið til að gera það voru Blikakonur sumarið 2015 en þær unnu þá deildina sannfærandi með 50 stig af 54 mögulegum og markatöluna 51-4. Breiðablikskonum hefur verið spáð Íslandsmeistaratitlinum tvisvar sinnum síðan en hafa misst af honum í bæði skiptin eða 2016 til Stjörnunnar og svo til Vals í fyrrasumar. Þegar Blikarnir unnu titilinn fyrir tveimur árum þá var þeim spáð fjórða sætinu en Þór/KA titlinum. Valskonum var spáð Íslandsmeistaratitlinum sumarið 2017 en þá endaði Valsliðið í þriðja sætinu og Þór/KA tók Íslandsmeistaratitilinn. Nú er að sjá hvort að það verði áfram jafnslæmt fyrir liðin í titilbaráttunni að vera spáð Íslandsmeistaratitlinum í þessari árlegu spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna deildarinnar. Íslandsmeistaraspá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna 2015-2019: 2015 Breiðablik spáð titlinum (Breiðablik Íslandsmeistari) 2016 Breiðablik spáð titlinum (Stjarnan Íslandsmeistari) 2017 Val spáð titlinum (Þór/KA Íslandsmeistari) 2018 Þór/KA spáð titlinum (Breiðablik Íslandsmeistari) 2019 Breiðablik spáð titlinum (Valur Íslandsmeistari)
Íslandsmeistaraspá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna 2015-2019: 2015 Breiðablik spáð titlinum (Breiðablik Íslandsmeistari) 2016 Breiðablik spáð titlinum (Stjarnan Íslandsmeistari) 2017 Val spáð titlinum (Þór/KA Íslandsmeistari) 2018 Þór/KA spáð titlinum (Breiðablik Íslandsmeistari) 2019 Breiðablik spáð titlinum (Valur Íslandsmeistari)
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ Handbolti Ógeðslega erfitt og ógeðslega vont en brosir oft í viku á eftir Sport Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Íslenski boltinn „Nú er nóg komið“ Fótbolti Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Enski boltinn Nefna greinar Íslandsmótsins í CrossFit í höfuðið á íslenskum íþróttakonum Sport Arnór Snær snýr aftur heim Handbolti Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Handbolti Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Fótbolti Félagið í greiðslustöðvun en borgaði öll laun degi fyrr Enski boltinn Fleiri fréttir Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Uppgjörið: ÍBV - KA 3-4 | KA tryggði sér Forsetabikarinn þriðja árið í röð Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Vestri og KR mætast á fyrsta degi vetrar: „Vona að það snjói ekki í nótt“ Lárus Orri framlengir á Skaganum „Kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni“ Sjá meira