Enski boltinn

Dalglish kominn heim af spítala

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Kenny Dalglish.
Kenny Dalglish. Mynd/Nordic Photos/Getty

Liverpool goðsögnin Kenny Dalglish hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi eftir að hafa verið lagður þangað inn síðastliðinn miðvikudag.

Dalglish er með kórónaveiruna en hann hafði verið að glíma við veikindi undanfarnar vikur og var í sjálfskipaðri sóttkví áður en hann var lagður inn á sjúkrahús á miðvikudag.

Hann mun nú takast á við veikindin heima hjá sér en hann hrósaði heilbrigðisstarfsfólki í hástert þegar hann var útskrifaður.

„NHS tryggir að allir fái úrvals þjónustu. Við sem þjóð erum heppin að hafa þau og ég óska þeim alls hins besta í baráttunni,“ segir Dalglish.

Dalglish er 69 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×