Erlent

Hirðingjar í Namibíu fá vatnsból

MYND/Gunnar Salvarsson

Stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hefur samþykkt að ráðast í að bora fyrir 33 nýjum vatnsbólum í heimkynnum Himba í norðvesturhluta Afríku. Himbar eru hirðingjar sem eru mikið á faraldsfæti með nautgripahjarðir sínar að leita uppi vatn og beitilönd og munu vatnsbólin auka lífsgæðin og gera hirðingjum fært að hafa lengur fasta búsetu en nú tíðkast, að sögn Stefáns Jóns Hafstein, verkefnastjóra Þróunarsamvinnustofnunar.

Að sögn Stefáns Jóns er strjálbýlt í héraðinu og að það einkennist af dreifðum þyrpingum húsa þar sem sækja verði vatn um langan veg. Ennfremur sé margs konar þjónusta af skornum skammti. „Fasta búsetan er forsenda fyrir því að hægt sé að efla leikskólastarf meðal Himba," segir Stefán Jón, „en ÞSSÍ hefur þegar komið upp fjórum leikskólum í tjöldum til að gefa börnum Himba tækifæri til að taka fyrstu skrefin á menntabraut. Engin hefð er fyrir slíku meðal hirðingja. Hugmyndin er að útvíkka leikskólaverkefnið þegar vatnsbólin verða tilbúin."

Stefán Jón segir að heimamenn á hverjum stað fái þjálfun í viðhaldi brunna og tilsögn í því að reka framkvæmdanefnd fyrir hvert vatnsból. Vatnsbólin verða því í eign og umsjá heimamanna í framtíðinni og viðhald á þeirra ábyrgð.

Starfsmenn ÞSSÍ í Namibíu, þeir Vilhjálmur Wiium umdæmisstjóri og Stefán Jón Hafstein verkefnisstjóri, sáu með eigin augum þörfina fyrir bætt vatnsból þegar þeir voru á ferð á þessum slóðum fyrr á árinu að því er segir í tilkynningu frá stofnuninni. Regnvatni hafði verið safnað í dæld til að brynna nautgripum. Stórar hjarðir stóðu út í vatninu, en jafnframt sóttu konur þangað vatn til að nota til heimilishalds og elda graut handa börnum í nærliggjandi leikskóla. Á öðrum stað mátti sjá hvernig ein borhola sem ÞSSÍ lét gera í fyrra skilaði tæru og fersku vatni bæði til dýra og manna.

 

Ætlunin er að verkefninu ljúki á árinu 2010.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×