Fimm prósent umsókna fengu brautargengi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 26. janúar 2017 10:15 "Ég vildi aðeins setja mitt mark á hátíðina,“ segir Gunnar Karel. Vísir/Eyþór Árnason
Það er erfitt að nefna einhverja hápunkta. Mér dettur þó í hug að benda á síðkvöldatónleikana í Norðurljósum í Hörpu bæði í kvöld og annað kvöld,“ segir Gunnar Karel Másson, listrænn stjórnandi Myrkra músíkdaga sem hefjast í dag. Þar er áhersla lögð á frumflutning samtímatónlistar, ekki síst eftir íslenska höfunda. Það er verkið Adapter eftir Davíð Brynjar Franzson sem verður á dagskrá í Norðurljósum í kvöld klukkan 21.30. Gunnar Karel segir það konsertuppfærslu af óperu, með smá rafkafla. „Angela Rawlings og Halldór Úlfarsson eiga hlutdeild í því hvernig verkið er uppbyggt. Flytjendurnir Gunnhildur Einarsdóttir, Ingólfur Vilhjálmsson, Matthías Engler og Kristjana Helgadóttir, ásamt aðstoðarfólki, eru hringinn í kringum áheyrendur.“ Þarna verður tónlistin greinilega alltumlykjandi en því verður öfugt farið hjá kammerhópnum Nordic Affect sem verður í Norðurljósum annað kvöld klukkan 10, eftir því sem Gunnar Karel lýsir. „Þar verða flytjendurnir inni í miðju og áheyrendur umhverfis. Hvort tveggja er spennandi.“ Leit að sjálfboðaliðum til að spila tónverk á þríhorn í anddyri Hörpu klukkan 18.30 á laugardagskvöldið stendur yfir. Verkið heitir Triangular Mass og er eftir hinn danska Niels Lyhne Løkkegaard. „Við þurfum 50 manns. Það fá allir klippikort fyrir að taka þátt, sem þýðir aðgangur á fimm tónleika,“ tekur Gunnar Karel fram. Hátíðin Myrkir músíkdagar var stofnuð af íslenskum tónskáldum árið 1980. „Það er búið að setja ákveðinn standard á hátíðina gegnum árin og áhuginn er gríðarlegur á að koma þar fram,“ segir Gunnar Karel. „Við fengum um það bil 200 umsóknir og um fimm prósent þeirra fengu brautargengi, það er þröngt nálaraugað. Svo er hér fjöldi fólks frá erlendum útvarpsstöðvum og menningartímaritum að fylgjast með.“ Gunnar Karel er tónskáld og heldur nú utan um Myrka í fyrsta skipti. „Ég vildi setja aðeins mitt mark á hátíðina. Gaf til dæmis grafískum hönnuði skotleyfi á svarta litinn sem hefur einkennt plaköt, það er minna um raftónleika en oft áður en rafpartar og elektróník er þó með á flestum tónleikum,“ lýsir hann. „Ég hef líka aðeins verið með puttana í efnisskrá flytjenda, sé það sem hlutverk listræns stjórnanda að leggja ákveðna línu. Ef hátíðin á að vera samkeppnishæf við aðrar hátíðir hér heima og erlendis er slíkt nauðsynlegt. Ég held að það eigi eftir að auka gæðin.“ Greinin birtisti fyrst í Fréttablaðinu 26. janúar 2016.
Menning Mest lesið Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Menning Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Lífið Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað Lífið Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Lífið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Lífið Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Lífið Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Lífið Fleiri fréttir Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira