Gamlir hermenn vernd nýja stjórn 13. október 2005 15:31
Hundruð gamalla sómalskra lögreglu- og hermanna hétu því að vernda nýja stjórn landsins og þing og gera sitt til að koma á lögum og reglu í landi sem hefur verið stjórnlaust í meira en áratug. Mennirnir sögðust reiðubúnir að vinna kauplaust ef stjórn og þing styddu við bakið á þeim þegar þau væru komin til valda. Mennirnir voru mættir í búningum sínum til að taka á móti hópi 30 þingmanna þegar þeir sneru aftur til Sómalíu og bjuggu sig undir að taka til starfa. Mörg ár eru liðin síðan lögregla og her störfuðu í Sómalíu. Þar hafa vígasveitir stríðsherra ráðið lögum og lofum frá því einræðisherrann Mohamed Siad Barre hrökklaðist frá völdum 1991. Lögreglu- og hermennirnir sögðust gera sér grein fyrir því að það væri ekki auðvelt að takast á við vopnaðar sveitir ungmenna. "Við vitum að við erum gamlir en við vitum hvað við erum að gera og búum að mikilli reynslu," sagði Mohamed Nor Galal, fyrrum herforingi sem situr á nýja þingi landsins. Hann fór fyrir lögreglumönnum. Tilraunin sem nú er gerð til að koma á lögum og reglu í Sómalíu er sú fjórtánda í röðinni. Hinar hafa allar brugðist, þar á meðal myndun tveggja stjórna. Nýja þingið og ríkisstjórnin voru mynduð á friðarráðstefnu í Nairóbí, höfuðborg Kenía. Þingmennirnir 30 sem komu til Mogadishu, höfuðborgar Sómalíu, á dögunum voru fyrstu meðlimir þings og stjórnar til að koma til Sómalíu eftir myndun þings og stjórnar í fyrra. Þeir voru umkringdir vopnuðum vörðum tilbúnum til átaka við vígasveitir stríðsherra. Enda kom í ljós að full þörf var á vernd því bardagar geisuðu í höfuðborginni meðan þingmenn skoðuðu hana. Þó miklar vonir séu bundnar við stjórnina er ljóst að mikið verk er óunnið. Vígasveitir stríðsherra og glæpaklíkur fara sínu fram, eigna sér svæði, ræna fólk og setja upp vegatálma þar sem þeir heimta toll af þeim sem fara um.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira