Segir aðstæður í Kabúl erfiðar 13. október 2005 15:31
Óttast er um líf ríflega hundrað manna sem voru um borð í flugvél sem fórst eftir að henni var snúið frá Kabúlflugvelli í Afganistan í gær vegna veðurs. Íslenskur friðargæsluliði sem vinnur á flugvellinum segir að aðstæður þar séu erfiðar enda hefur snjóað gríðarlega undanfarnar vikur. Fregnir eru enn nokkuð óljósar, til dæmis hafa borist misvísandi fréttir af því hvort búið sé að finna flak vélarinnar eða ekki. Leit hefur hins vegar verið hætt í dag enda komin nótt í Afganistan. Alls voru 104 um borð í vélinni, 96 farþegar og þar af um 14 útlendingar. Gunnlaugur Jónsson slökkviliðsmaður, sem var á vakt á flugvellinum í Kabúl þegar við náðum tali af honum í dag, segir að vélin hafi verið að koma frá Herat og hafi átt að lenda í Kabúl. Hún hafi flogið yfir flugvöllin klukkan fjögur að staðartíma í gær en hafi ekki getað lent vegna lélegs skyggnis. Mikil snjókoma hafi verið í gær og um hálfum metra af jafnföllnum snjó hafi kyngt niður. Vélin hafi því verið snúið við og hún hafi átt að lenda í Pakistan en ekki hafi heyrst meira frá flugmönnum hennar. Flugvöllurinn er fullbúinn góðum snjóruðningstækjum líkt og aðrir alþjóðlegir vellir en Gunnlaugur segir að í svona mikilli snjókomu verði stundum tafir. Mikið fannfergi hafi verið á svæðinu undanfarið og hvítt yfir öllu undanfarnar tvær til þrjár vikur sem sé met í Kabúl. Yfirtleitt séu um tveir til þrír snjódagar á vetri en fólki þyki veturinn harður nú. Fimmtán íslenskir friðargæsluliðar starfa á Kabúlflugvelli sem er að öllu jöfnu talinn frekar erfiður enda er aðkoman brött. Gunnlaugur segir að fjallgarðar séu hringinn í kringum borgina og flugvélarnar þurfi að taka svolitla dýfu til að komast niður að flugvellinum, þetta sé svipað og að lenda á Ísafirði.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Fleiri fréttir Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Sjá meira