Skilningsrík og full samúðar í garð Garlands Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 8. maí 2019 23:00 Garland þarf vart að kynna en hún skaust skyndilega upp á stjörnuhimininn þegar hún lék Dorothy, aðalhlutverkið, í Galdrakarlinum í Oz árið 1939. Hún giftist fimm sinnum um ævina og átti þrjú börn. Garland lést af of stórum skammti þegar hún var aðeins 47 ára árið 1969.
Óskarsverðlaunaleikkonan Renée Zellweger las allt sem hún komst yfir um bandarísku leik-og söngkonuna Judy Garland þegar hún undirbjó sig fyrir kvikmyndina Judy þar sem Zellweger túlkar stormasama ævi hennar. Zellweger segist hafa öðlast djúpstæða virðingu fyrir Garland í undirbúningsferlinu þegar hún gaumgæfði nánar ævi Garlands og þær aðstæður sem hún bjó við. Garland þarf vart að kynna en hún skaust skyndilega upp á stjörnuhimininn þegar hún lék Dorothy, aðalhlutverkið, í Galdrakarlinum í Oz árið 1939. Hún giftist fimm sinnum um ævina og átti þrjú börn. Garland lést af of stórum skammti þegar hún var aðeins 47 ára árið 1969.Judy, sem er leikin heimildarmynd um ævi Garlands, kemur út 27. september en Rupert Goold, sem er þekktur fyrir störf á vettvangi leikhússins, fer með leikstjórn. „Þegar maður öðlast skilning á því hvað raunverulega þarf til að geta lifað af í ákveðnum kringumstæðum þá getur maður ekki annað fundið fyrir samlíðan og virðingu í garð hennar,“ segir Zellweger sem á sér þá von í brjósti að áhorfendur öðlist dýpri skilning á lífi Garlands með kvikmyndinni. „Og allar þær hindranir hún þurfti að sigrast á á tímum þegar konum leið ekkert endilega eins og þær hefðu vald yfir eigin lífi líkt og við gerum í dag. Þetta sat í mér og ég vona að hún muni hreyfa við fólki eins og hún hefur hreyft við mér“.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Lífið Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið 97 ára með tvær listasýningar í gangi Menning Vilja stimpla sig inn með stæl Lífið Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira