Uppbyggingarstarfið gríðarlegt 13. október 2005 15:21
Ágætlega gengur að koma hjálpargögnum til flestra hamfarasvæðanna í Asíu, en uppbyggingarstarfið sem blasir við er gríðarlegt. Á Srí Lanka þurfa um tvö hundruð þúsund fjölskyldur á aðstoð að halda og enn er verið að grafa látna. Fréttamaður Stöðvar 2, Ingólfur Bjarni Sigfússon, er staddur á eynni. Ástandið er misjafnt eftir landshlutum og eftir því er spurður. Tamílar gefa eina útgáfu og stjórnvöld önnur. Pólitík og ástand vega hefur áhrif á hjálparstarfið, auk þess sem nú er rigningatími í þessum heimshluta sem heftir starfið. Nú er spáð hitabeltisstormi sem gæti enn bætt á erfiðleikana. Hjálpargögn streyma til Srí Lanka en þó ekki jafn hratt og æskilegt væri. Flugvöllurinn í Kólombó er lítill og ræður ekki við mikla umferð og því þarf ekki mikið til að allt teppist. Þegar heimsóknir tignarmanna með tilheyrandi umstangi bætist við er vandinn ærinn. Í dag voru hér t.a.m. kínverskur og franskur ráðherra sem er líklega ein skýring þess að fraktvélar með hjálpargögn hafa þurft að bíða sólarhringum saman eftir að fá lendingarheimild. Okkur er sagt að hjálpargögn berist nú vel til suðurhluta eynnar og hjálparstarf gangi vel. Á austurströndinni sem varð einna verst úti gengur mun hægar. Vegir þar eru margir í sundur og ákaflega erfitt að koma gögnum landleiðina. Norðar á eynni halda tamílar því statt og stöðugt fram að hjálp sé haldið frá svæðum þeirra í pólitískum tilgangi. Þrátt fyrir þetta segja eftirlitsmenn að samvinna stjórnarhermanna og sveita tamíl-tígranna á vettvangi sé mjög góð, burtséð frá deilum ráðamanna beggja megin borðsins. Aðstæður eru víða þannig að samvinna er eina leiðin fyrir þá að lifa af.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira