Erlent

Uppbyggingarstarfið gríðarlegt

Ágætlega gengur að koma hjálpargögnum til flestra hamfarasvæðanna í Asíu, en uppbyggingarstarfið sem blasir við er gríðarlegt. Á Srí Lanka þurfa um tvö hundruð þúsund fjölskyldur á aðstoð að halda og enn er verið að grafa látna. Fréttamaður Stöðvar 2, Ingólfur Bjarni Sigfússon, er staddur á eynni. Ástandið er misjafnt eftir landshlutum og eftir því er spurður. Tamílar gefa eina útgáfu og stjórnvöld önnur. Pólitík og ástand vega hefur áhrif á hjálparstarfið, auk þess sem nú er rigningatími í þessum heimshluta sem heftir starfið. Nú er spáð hitabeltisstormi sem gæti enn bætt á erfiðleikana. Hjálpargögn streyma til Srí Lanka en þó ekki jafn hratt og æskilegt væri. Flugvöllurinn í Kólombó er lítill og ræður ekki við mikla umferð og því þarf ekki mikið til að allt teppist. Þegar heimsóknir tignarmanna með tilheyrandi umstangi bætist við er vandinn ærinn. Í dag voru hér t.a.m. kínverskur og franskur ráðherra sem er líklega ein skýring þess að fraktvélar með hjálpargögn hafa þurft að bíða sólarhringum saman eftir að fá lendingarheimild.   Okkur er sagt að hjálpargögn berist nú vel til suðurhluta eynnar og hjálparstarf gangi vel. Á austurströndinni sem varð einna verst úti gengur mun hægar. Vegir þar eru margir í sundur og ákaflega erfitt að koma gögnum landleiðina. Norðar á eynni halda tamílar því statt og stöðugt fram að hjálp sé haldið frá svæðum þeirra í pólitískum tilgangi. Þrátt fyrir þetta segja eftirlitsmenn að samvinna stjórnarhermanna og sveita tamíl-tígranna á vettvangi sé mjög góð, burtséð frá deilum ráðamanna beggja megin borðsins. Aðstæður eru víða þannig að samvinna er eina leiðin fyrir þá að lifa af.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×