Þýskir sjóstangveiðimenn mokfiska Gissur Sigurðsson skrifar 6. júní 2014 14:23 Kampakátur þýskur sjóstangaveiðimaður með vænan og ófrýnilegan feng úr undirdjúpunum. Róbert Schmidt
Strandveiðisjómenn eru afar óhressir með að mega ekki róa nú í blíðunni og að þurfa að vera í landi fram á þriðjudag. Samtímis eru um það bil 40 smábátar á veiðum á Vestfjarðamiðum, mannaðir þýskum stangveiðimönnum, sem eru ólikt kátari, enda eru þeir að mokfiska. Bátarnir eru gerðir út frá fimm kauptúnum á Vestfjörðum og er veiðimönnunum séð fyrir húsnæði á hverjum stað. Á Suðureyri stjórnar Súðfirðingurinn Róbert Schmidtútgerðinni þar. „Núna er vertíðin að byrja, sjóstangavertíðin hérna fyrir vestan. Þetta eru tvö stór fyrirtæki sem eru með sjóstangabáta. Okkar aðalkúnnar eru frá Þýskalandi. Okkar fyrirtæki, Iceland Pro Fishing, við erum með 22 báta. Svo er Sumarbyggð með hátt í 20 báta, þetta er svona stærsti kjarni í sjóstangaveiðinni á Íslandi.“ Róbert segir að allt sé komið í gang nú þegar. „Jájájá, það er svolítið síðan. Við tókum fyrstu kúnnana í apríl og svo er þetta allt að byrja á fullu núna. Það er komin um rúm vika síðan þetta byrjaði af fullum krafti.“ Róbert segir að það séu alltaf sömu mennirnir sem koma aftur, ár eftir ár, og hafa komið síðan 2007, sömu hóparnir aftur og aftur á þessum tíma. „Þeir eru orðnir sérhæfðir, þekkja svæðið og eru að veiða mjög stóra þorska, alveg uppí 30 kílóa, skötusel, hlýra, ýsu, karfa, löngu ... þetta er bara allur pakkinn,“ segir Róbert á Suðureyri. Aflanum er svo landað þar til vinnslu. Sjávarútvegsráðuneytið leggur þessari starfssemi til kvóta árlega og svo leggja sjávarútvegsfyrirtækin til kvóta einnig, ef með þarf.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira