Watford kom sér af fallsvæðinu með þriggja marka sigri Arnar Geir Halldórsson skrifar 12. janúar 2020 15:45 Doucouré kemur Watford í forystu. vísir/getty Watford hélt uppteknum hætti undir stjórn Nigel Pearson þegar liðið heimsótti Bournemouth í fallbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni í dag. Franski miðjumaðurinn Abdoulaye Doucouré var frábær á miðju gestanna í dag og vel við hæfi að hann kæmi liðinu í forystu eftir undirbúninga Ismaila Sarr á 42.mínútu. Troy Deeney tvöfaldaði forystu Watford eftir rúmlega klukkutíma leik þegar hann fylgdi á eftir skoti Doucouré. Varamaðurinn Roberto Pereyra fullkomnaði svo sigurinn með marki í uppbótartíma. Lokatölur 0-3. Það hefur verið allt annað að sjá til Watford liðsins síðan Pearson tók við stjórnartaumunum í desember og er liðið nú taplaust í fimm deildarleikjum í röð. Bournemouth hins vegar í alls konar vandræðum í næstneðsta sæti deildarinnar. Enski boltinn
Leik lokið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Leik lokið: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Leik lokið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Leik lokið: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn