Viðskipti innlent

Mikil tækifæri framundan á Grænlandi fyrir verktaka

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá undirritun samninga um skólann í Nuuk þann 18. desember. Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks, Charlotte Ludvigsen, borgarstjóri sveitarfélagsins Sermersooq, sem Nuuk tilheyrir, og Hermann Sigurðsson, yfirverkfræðingur Ístaks, á lóðinni þar sem skólinn rís.
Frá undirritun samninga um skólann í Nuuk þann 18. desember. Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks, Charlotte Ludvigsen, borgarstjóri sveitarfélagsins Sermersooq, sem Nuuk tilheyrir, og Hermann Sigurðsson, yfirverkfræðingur Ístaks, á lóðinni þar sem skólinn rís. Mynd/Sveitarfélagið Sermersooq.

Spennandi tímar fara í hönd á Grænlandi með mikilli uppbyggingu. Framkvæmdastjóri Ístaks segir að þar séu framundan stór verkefni, sem fyrirtækið vilji taka þátt í. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.

Ráðamenn Ístaks undirrituðu fyrir jól ellefu milljarða króna samning um smíði skóla í Nuuk sem verður sá stærsti á Grænlandi. 

Sjá hér: Ístak undirritar verksamning um smíði stærsta skóla Grænlands

Skólabyggingin verður samtals sextán þúsund fermetrar að stærð.Teikning/Ístak.

Þetta er aðeins einn angi af gríðarlegri innviðauppbyggingu, sem hafin er, en þar ber flugvallagerðina hæst.

„Já, það eru mjög spennandi tímar. Og það verður mikið um að vera þarna. Það er verið að byggja þennan nýja flugvöll í Nuuk. Og svo verður byrjað á næsta ári á flugvellinum í Ilulissat og líka í Qaqortoq. Og þetta mun bara auka mikið á alla túristatraffík til Grænlands,“ segir Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks.

Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks.Stöð 2/Sigurjón Ólason.

Í Nuuk eru fyrirhuguð ný íbúðahverfi en spáð er að bærinn vaxi úr átján þúsund manna bæ upp í þrjátíu þúsund manna bæ á næsta áratug. Þá hafa birst fréttir af áformum um smíði þriggja nýrra hótela. En sér Ístak fram á enn meiri verkefni á Grænlandi? 

„Já, við sjáum fyrir okkur að það eru möguleikar á Grænlandi sem við viljum taka þátt í. Það eru útboð þarna sem eru framundan sem við munum skoða vel,“ svarar Karl.

Teikning af Nuuk-flugvelli eftir stækkun á núverandi stað upp í 2.200 metra.GRAFÍK/KALAALIT AIRPORTS.

Þótt Ístaksmenn stefni að því að ráða sem flesta heimamenn til starfa við smíði skólans mun það ekki duga til og gera þeir ráð fyrir að flytja þurfi inn vinnuafl.

„Nú sjáum við fyrir okkur að vinnuaflið sem fer héðan út eru kannski að meirihluta pólskir starfsmenn okkar, sem sækja í það að vinna frá heimili. En það er erfiðara fyrir Íslendinga kannski að fara í verkefni á Grænlandi þegar nægt er um framboð af vinnu hér heima.“

Frá Nuuk, höfuðstað Grænlands. Gamla höfnin í forgrunni.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Ístaksmenn hafa allt frá árinu 1970 sent mörghundruð Íslendinga til starfa á Grænlandi við ólík verkefni, síðast að hafnargerð í Nuuk.

„Þetta er mjög spennandi. Og sjálfur hef ég verið að vinna erlendis og eytt miklum tíma þar í verkefnum, og bæði tekið fjölskyldu með, - og án. Ég bara mæli með þessu að menn prófi þetta. Þetta er mjög skemmtilegt að prufa eitthvað nýtt,“ segir Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Eldur sagður kveikja gullæði á Grænlandi

Gullæði á Grænlandi. Þannig hljómar fyrirsögn eins grænlensku fjölmiðlanna eftir að fréttir bárust um stóran gullfund fyrirtækis, sem Íslendingurinn Eldur Ólafsson stendur að.

Gætum lært af Grænlendingum að brosa meira og hlæja meira

"Við megum líka læra meira um sögu ykkar Grænlendinga, gleyma um stund Eiríki rauða og hópnum sem honum fylgdi, og horfa frekar til hinna sem settust hér að. Það er í raun mögnuð saga," sagði forseti Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×