Viðskipti innlent

Ó­vissu á lána­markaði eytt í byrjun næsta árs

Árni Sæberg skrifar
Hæstiréttur mun að öllum líkindum kveða upp dóm í síðasta vaxtamálinu snemma á næsta ári.
Hæstiréttur mun að öllum líkindum kveða upp dóm í síðasta vaxtamálinu snemma á næsta ári. Vísir/Vilhelm

Síðustu tvö vaxtamálin svokölluðu eru komin á dagskrá Hæstaréttar. Það síðara er á dagskrá þann 8. desember og því má reikna með því að dómur verði kveðinn upp í því ekki síðar en 5. janúar næstkomandi.

Gríðarleg óvissa hefur verið uppi á lánamarkaði frá því að Hæstiréttur dæmdi tiltekna skilmála Íslandsbanka ólögmæta þann 14. október síðastliðinn. Síðan þá hafa flestar lánastofnanir gert breytingar á lánaframboði sínu, ýmist tímabundnar eða varanlegar.

Þá hefur ríkisstjórnin boðað aðgerðir til þess að létta á óvissu varðandi verðtryggð lán, með því að koma því til leiðar að Seðlabankinn birti vaxtaviðmið tengt vöxtum á ríkisskuldabréfum.

Fasteignasalar og fulltrúar verktakafyrirtækja hafa lýst því yfir að söguleg óvissa ríki á fasteignamarkaði vegna lánamála og ekki verði búið við ástandið til lengdar.

Næsti dómur í desember

Skilmálarnir sem dæmdir voru ólöglegir með dómi Hæstaréttar voru í lánasamningi um óverðtryggt lán á breytilegum vöxtum og fólu í sér heimild til handa bankanum til að breyta vöxtum miðað við hina ýmsu áhrifaþætti. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að aðeins mætti breyta vöxtunum í takti við breytingar á stýrivöxtum.

Ljóst er að dómurinn leysir ekki úr öllum álitamálum sem uppi eru, til að mynda vegna þess að verðtryggð lán verða ekki bundin stýrivöxtum sökum eðlis þeirra. 

Þrjú önnur mál sem neytendur höfðuðu á hendur bönkunum, með fulltingi Neytendasamtakanna og varða skilmála bankanna, bíða afgreiðslu Hæstaréttar en það næsta á dagskrá réttarins er mál neytenda á hendur Arion banka. Með því verður leyst úr álitamálum varðandi verðtryggð lán með breytilegum vöxtum.

Á vef Hæstaréttar má sjá að málflutningur er á dagskrá þann 17. nóvember næstkomandi.

Samkvæmt lögum um meðferð einkamála skal kveða upp dóm eigi síðar en fjórum vikum eftir málflutning, ellegar skuli flytja mál á ný. Einkar óvanalegt er að Hæstiréttur fari umfram fjórar vikurnar og sömu sögu er að segja af því að rétturinn kveði upp dóma innan fjögurra vikna.

Því má reikna með því að dómur verði kveðinn upp í málinu þann 15. desember næstkomandi.

Mál varðandi viðbótarlán næst

Í fyrradag birtust tvö mál á dagskrá Hæstaréttar. Það fyrra er á dagskrá þann 3. desember og er höfðað af tveimur lántakendum á hendur Landsbankanum. Það varðar óverðtryggt viðbótarlán með breytilegum vöxtum og í því er deilt um sambærilega skilmála og í máli neytenda á hendur Íslandsbanka.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi bankanum í vil í mars síðastliðnum, einkum með vísan til þess að vextirnir sem lántakendur greiddu voru aldrei hærri en upphafsvextir miðað við lánasamninginn. Þannig nýtti bankinn sér aldrei umdeilda skilmála til þess að hækka vextina.

Hæstiréttur veitti lántakendunum áfrýjunarleyfi til réttarins í byrjun júní, án þess að málið væri tekið fyrir í Landsrétti. Miðað við sömu forsendur og raktar voru hér að ofan rennur frestur Hæstaréttar til þess að kveða upp dóm í málinu á gamlársdag.

Dómur í síðasta málinu snemma á nýju ári

Loks er mál tveggja lántakenda á hendur Landsbankanum á dagskrá þann 8. desember. Í því er deilt um skilmála tveggja verðtryggða skuldabréfa sem gefin voru út árið 2006 til forvera Landsbankans, til þess að gera upp skuld vegna yfirdráttar.

Landsbankinn var í héraði dæmdur til að endurgreiða lántakendum rúmlega 100 þúsund krónur hvorum um sig en Landsréttur sýknaði bankann. Rétturinn taldi það ekki hafa verið ósanngjarnt af bankanum að bera fyrir sig skilmála um vaxtabreytingar, þar sem að vextir hefði iðullega verið lægri en upphafsvextir.

Ganga má út frá því að dómur í málinu gangi eigi síðar en þann 5. janúar næstkomandi. Þá mun öllum vaxtamálum Neytendasamtakanna vera lokið. 

Þess má þó geta að mál Íslandsbanka á hendur Neytendastofu, til ógildingar ákvörðunar um að bankinn hefði brotið gegn lögum um neytendalán með ófullnægjandi upplýsingagjöf á stöðluðu eyðublaði til neytenda, er ekki enn komið á dagskrá Hæstaréttar.


Tengdar fréttir

Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli

Formaður Félags fasteignasala segist aldrei hafa upplifað aðra eins óvissu og ríkir nú á fasteignamarkaði í kjölfar dóms í vaxtamálinu svokallaða. Hver dagur og vika sem líði í óvissu hafi neikvæð áhrif á markaðinn til lengri tíma.

Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans

Breytingar á lánareglum Seðlabankans munu ekki hafa áhrif á fjölda fólks, þar sem reglur um greiðslubyrði haldast þær sömu. Þetta segir dósent við Háskóla Íslands. Þó geti um fimmtán hundruð kaupendur komið nýir inn á fasteignamarkaðinn

Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að gera breytingar á reglum Seðlabankans um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda og hækka hámarkið við kaup á fyrstu fasteign úr 85 prósent í 90 prósent. Hámark veðsetningarhlutfalls fyrir aðra lántaka helst óbreytt í 80 prósent.

Til­kynna breytingar á lána­fram­boði

Íslandsbanki hefur tilkynnt breytingar á lánaframboði bankans vegna dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Tímabundið verða einungis óverðtryggð lán á föstum vöxtum í boði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×