Viðskipti erlent

Eigandi Icelandair Hotels vill reisa lúxushótel í hjarta Nuuk

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hótelbyggingin er teiknuð sem þríhyrningur á landfyllingu við Nýlenduhöfn.
Hótelbyggingin er teiknuð sem þríhyrningur á landfyllingu við Nýlenduhöfn. Mynd/Berjay Land Berhad.
Aðaleigandi Icelandair-Hotels, malasíski auðkýfingurinn Vincent Tan, hefur kynnt áform um að reisa lúxushótel í hjarta Nuuk, höfuðstaðar Grænlands. Þótt Grænlendingar virðist almennt fagna uppbyggingunni hefur staðsetning hótelsins vakið harðar deilur.

Sjá mátti teikningar af hótelinu í fréttum Stöðvar 2.

Styttan af Hans Egede er á hæð í botni Nýlenduhafnar.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Elsti hluti Nuuk og hjarta bæjarins er við Nýlenduhöfn. Hér er styttan af trúboðanum Hans Egede sem með leyfi Danakonungs fór að leita að norrænum íbúum Grænlands fyrir nærri þrjúhundruð árum en fann þá bara inúíta. Hann ákvað að kristna þá, stofnaði trúboðsstöð, og lagði þar með grunninn að bænum Godthåb.

Hér er einnig Þjóðminjasafn Grænlands í nokkrum af elstu byggingum bæjarins. Það er við hliðina á því sem búið er teikna fjögurra hæða lúxushótel.

Hótelinu er ætlað að rísa skammt frá Þjóðminjasafni Grænlands.Mynd/Berjay Land Berhad.
Þar er gert ráð fyrir nærri eitthundrað herbergjum, þar af fjórtán lúxussvítum, en einnig veitingastöðum og ráðstefnusölum.

Á bak við áformin stendur félagið Berjaya, sem er í eigu malasíska kaupsýslumannsins Vincent Tan, þess sama og keypti meirihluta í Icelandair Hotels fyrir fimm mánuðum.

Elsti bæjarhluti Nuuk er við Nýlenduhöfn. Hús Þjóðminjasafnsins má sjá neðst, við fánastöngina.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Reiði yfir staðsetningu lúxushótels, segir fyrirsögn Sermitsiaq en undirskriftarsöfnun er hafin gegn því að hótelið rísi í gamla bæjarhlutanum. Andstæðingar segjast samt ekki vera á móti fjárfestingunni, það þurfi bara að finna hótelinu annan stað í Nuuk.

Bæjarstjórinn er ósammála, segir staðsetninguna í Nýlenduhöfn spennandi, hún sameini gamla Grænland við nútímann.

Svona er einn af veitingastöðum hótelsins sýndur.Mynd/Berjay Land Berhad.
Hvort sem hótelið rís á þessum stað eða ekki, þá er áhuginn á hótelbyggingunni sagður tengjast ákvörðun um nýjan flugvöll í Nuuk sem á að vera tilbúinn eftir þrjú ár. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Malasíski risinn gengur frá kaupunum á Geirsgötu 11

Dótturfélag malasísku fyrirtækjasamsteypunnar Berjaya Corporation, sem keypti í sumar 75 prósent hlutafjár í Icelandair Hotels, hefur gengið frá kaupum á fasteigninni að Geirsgötu 11 á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík.

Berjaya greiðir um sjö milljarða fyrir hlutinn

Kaupverð Berjaya á 75 prósentum hlutafjár í Icelandair Hotels og tengdum fasteignum nam tæpum sjö milljörðum. Endurfjármagnar skuldir keðjunnar með allt að níu milljarða láni. Telur að markaður fyrir lúxushótel muni stækka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×