Öruggt hjá Börsungum gegn Dortmund

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
Barcelona tryggði sér toppsæti F-riðils Meistaradeildar Evrópu með sigri á Borussia Dortmund í kvöld.

Lionel Messi og Luis Suarez sáu um Dortmund í fyrri hálfleik, Messi lagði upp mark fyrir Suarez á 29. mínútu og Úrúgvæinn þakkaði fyrir sig með því að leggja upp fyrir Messi fjórum mínútum seinna.

Antoine Griezmann skoraði þriðja mark Börsunga í seinni hálfleik og það kom ekki að sök þó Jadon Sancho hefði náð inn marki fyrir Dortmund.

Lokatölur urðu 3-1 og er Barcelona með 11 stig á toppi riðilsins. Dortmund er í þriðja sæti með sjö stig líkt og Inter í öðru sætinu.

Inter mætti Slavia Prag í sama riðli og vann þar 3-1 sigur. Romelu Lukaku og Lautaro Martinez sáu um að skora mörkin fyrir Inter.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira