Fótbolti

Sara mis­notaði víta­spyrnu er Wolfs­burg tryggði sér sæti í 8-liða úr­slitum Meistara­deildarinnar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sara í fyrri leiknum gegn Twente.
Sara í fyrri leiknum gegn Twente. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði síðari hálfleikinn þegar Wolfsburg tryggði sig örugglega áfram í 8-liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu.

Wolfsburg vann fyrri leik liðanna 6-0 og var því í góðum málum fyrir leikinn í kvöld en Sara Björk byrjaði leikinn á varamannabekknum í kvöld.

Fyrsta og eina mark leiksins kom á 16. mínútu er Anna Biaesse skoraði. Wolfsburg fékk vítaspyrnu á 78. mínútu en Sara Björk lét markvörð Twente verja frá sér.







Wolfsburg er því komið áfram í átta liða úrslitin en þær fóru alla leið í úrslitaleikinn á síðustu leiktíð þar sem þær töpuðu fyrir Lyon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×