Gnabry með fernu þegar Bayern valtaði yfir Tottenham

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Serge Gnabry fór á kostum í seinni hálfleik
Serge Gnabry fór á kostum í seinni hálfleik vísir/getty
Bayern München hafði betur gegn Tottenham í níu marka leik í Lundúnum í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Heimamenn í Tottenham komust yfir með marki frá Son Heung-min á 12. mínútu en gestirnir jöfnuðu þremur mínútum seinna með glæsimarki frá Joshua Kimmich.

Robert Lewandowski kom svo Bayern yfir á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.

Í seinni hálfleik fór Serge Gnabry á kostum og skoraði fjögur mörk fyrir Bayern sem valtaði yfir Tottenham.

Inn á milli marka Gnabry þá skoraði Lewandowski annað mark og Harry Kane setti sárabótamark fyrir Tottenham úr vítaspyrnu.

Lokatölur urðu 2-7 fyrir Bayern sem er með fullt hús stiga í B-riðli eftir tvo leiki. Tottenham er með eitt stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira