Suarez hetja Barcelona

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Luis Suarez
Luis Suarez vísir/getty
Luis Suarez skoraði bæði mörk Barcelona í endurkomusigri á Inter í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Lautaro Martinez kom Inter yfir strax á annari mínútu leiksins og var hann nálægt því að bæta öðru marki við en Marc-Andre ter Stegen sá við honum.

Suarez jafnaði fyrir Barcelona í seinni hálfleik og bætti svo sigurmarkinu við undir lok leiksins. Lionel Messi lagði upp markið.

Þessi mörk voru þau fyrstu sem Suarez skoraði í Meistaradeildinni í meira en þrjú ár.

Barcelona er með fjögur stig í riðlinum líkt og Dortmund.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira