Innlent

Þrjú fíkni­efna­mál á Lauf­skála­réttar­helginni

Atli Ísleifsson skrifar
Á áttunda tug ökumanna voru stöðvaðir fyrir ýmiss umferðarlagabrot.
Á áttunda tug ökumanna voru stöðvaðir fyrir ýmiss umferðarlagabrot. Vísir/Vilhelm

Alls komu þrjú fíkniefnamál upp á Laufskálaréttarhelginni og var um að ræða talsvert magn fíkniefna sem talið er að hafi verið ætluð til sölu á svæðinu.



Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra. Þar segir að hátíðin hafi tekist vel til og mikill fjöldi hesta og manna verið saman kominn í Skagafirðinum þar sem veðrið lék við viðstadda.



„Fóru réttirnar vel fram sem og viðburðir tengdir helginni. Á áttunda tug ökumanna voru stöðvaðir fyrir ýmiss umferðarlagabrot og var þar of hraður akstur mest áberandi. Þrjú fíkniefnamál komu upp á helginni en um var að ræða talsvert magn fíkniefna er talið er að hafi verið ætluð til sölu á svæðinu. Þau efni komust því ekki í umferð og er það vel. Naut lögreglan aðstoðar fíkniefnaleitarhunds og þjálfara lögreglunnar á Austurlandi en fjöldi lögreglumanna stóð vaktina um helgina.



Fyrri part vikunnar lagði lögreglan á Norðurlandi vestra hald á umtalsvert magn fíkniefna. Þar var um að ræða bæði kannabisefni og örvandi efna sem talin eru hafa verið ætluð til sölu. Þá voru, í vikunni sem leið, sex ökumenn kærðir vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana og -fíkniefna,“ segir í færslunni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×