Innlent

Segir lausnina ekki að taka RÚV af aug­lýsinga­markaði heldur að minnka um­svif stofnunarinnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það verði að skoða hlutverk RÚV.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það verði að skoða hlutverk RÚV. vísir/vilhelm
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það sé engin lausn til framtíðar að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði en bæta þeim upp tekjutapið með hærri framlögum ríkisins.

Sjálf vill hún helst leggja RÚV niður en kveðst gera sér grein fyrir því að til þess skorti pólitískan vilja almennt. Sigríður talar því fyrir því að minnka umsvif RÚV og spyr hvort nauðsynlegt sé að stofnunin reki tvær útvarpsstöðvar eða sýni jafnmikið afþreyingarefni og nú.

Rætt var við Sigríði í Bítinu á Bylgjunni í morgun í tilefni af grein sem hún skrifaði í gær á heimasíðu sína þar sem hún spurði hvort fjölmiðlar væru líklegir til að veita stjórnvöldum aðhald á sama tíma og þeir væru á styrkjum frá ríkinu.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, er einmitt með áform um að leggja fram frumvarp um ríkisstyrki til fjölmiðla á yfirstandandi þingvetri.

„Á ríkið að fjármagna fjölmiðla í frjálsu landi?“

Sigríður segir að hún sé að benda á þann punkt að með slíku fyrirkomulagi væri verið að gera alla fjölmiðla ríkisrekna, gera þá háða framlögum frá ríkinu. Hún segir að menn lendi alltaf í vanda ef ekki sé horft á heildarmyndina og stóru spurningunni svarað.

„Á ríkið að fjármagna fjölmiðla í frjálsu landi? Þá er ég ekki bara að tala um einkafjölmiðla heldur líka RÚV. Hvernig ætlum við að horfa á þetta til framtíðar?“ spyr Sigríður og segir menn komna í ógöngur þegar því er haldið fram að ef RÚV verði tekið af auglýsingamarkaði þá þurfi að bæta stofnuninni upp tekjurnar með framlagi frá ríkinu. Slíkt muni hún aldrei styðja.

„Þar með væri RÚV komið með sex til sjö milljarða úr ríkiskassanum. Þetta er einhver hugsanavilla eða misskilningur sem er kannski auðvelt fyrir stjórnmálamenn að flækja sig í ef menn vilja ekki taka umræðuna um hlutverk ríkisins á fjölmiðlamarkaði,“ segir Sigríður.

Menn beini frekar sjónum sínum að RÚV en einkareknum fjölmiðlum

Hún segir að það þurfi að ræða um hlutverk RÚV.

„Ég held að menn ættu frekar að beina sjónum sínum að RÚV heldur en einkareknum fjölmiðlum, fara að endurskoða hlutverk RÚV, svara þeirri spurningu: er það nauðsynlegt að RÚV sé að þenja sig inn á alla markaði sem að koma upp með nýrri tækni og þróun? Ég sá að um daginn var ráðinn einhver ritstjóri yfir samfélagsmiðla. RÚV er komið inn á samfélagsmiðla. Er það hlutverk RÚV? Er nauðsynlegt að reka báðar rásirnar? Er nauðsynlegt að vera með allt þetta afþreyingarefni hjá RÚV? Þetta þurfa menn að fara í.“

Sigríður vill ekki meina að vera RÚV á auglýsingamarkaði sé lykilatriði. Það sé þó ekki sanngjarnt að ríkisfyrirtæki sé að keppa við einkaaðila en Sigríður segist telja að það yrði skammgóður vermir fyrir aðra fjölmiðla færi RÚV af auglýsingamarkaði.

„Ég viðurkenni að ég hef ekki lagst í skoðun á þessum auglýsingamálum því mér finnst það ekki ávarpa vandann sem er til staðar sem er rekstur ríkisins á fyrirtæki sem er almennt í samkeppni, ekki bara á auglýsingum heldur líka um efni og hlustun,“ segir Sigríður en viðtalið í heild sinni má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.






Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×