Juventus mistókst að skora gegn Fiorentina

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ronaldo og félagar áttu ekki sinn besta dag í dag.
Ronaldo og félagar áttu ekki sinn besta dag í dag. vísir/getty
Leikurinn var frekar jafn á öllum vígstöðvum þó Juventus væri aðeins meira með boltann. Ef eitthvað er þá hefðu heimamenn í Fiorentina átt að stela öllum þremur stigunum þar sem þeir áttu töluvert fleiri skot að marki heldur en gestirnir.

Heimamenn komu knettinum hins vegar ekki framhjá Wojciech Szczęsny í marki Juventus og því var markalaust jafntefli niðurstaðan. 

Var þetta fyrsta stig Fiorentina á leiktíðinni en Juventus hafði unnið báða leiki sína fram að þessu.

Juventus er sem stendur í efsta sæti deildarinnar með sjö stig en þetta var fyrsti leikur dagsins svo ekki er ólíklegt að þeir missi toppsætið þegar líður á daginn. Á sama tíma er Fiorentina í 16. sæti með aðeins eitt stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira