Víðismenn minnast Grétars Einarssonar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. september 2019 12:15 Grétar Einarsson var lykilmaður í Víðisliðinu á níunda áratugnum. Mynd/Víðir
Knattspyrnufélagið Víðir úr Garði minnist í dag markahæsta leikmanns félagsins í efstu deild frá upphafi en Grétar Einarsson féll frá 16. september eftir harða en skammvinna baráttu við alvarleg veikindi. Grétar var lykilmaður í ævintýralegum árangri Víðis á níunda áratugnum þar sem þetta litla bæjarfélag eignaðist lið sem spilaði þrjú tímabil í efstu deild (1985-87) og komst í bikarúrslitaleikinn árið 1987. Grétar Einarsson fæddist í október árið 1964 og var því á 55 aldursári. Grétar er leikjahæsti leikmaður Víðis í efstu deild (ásamt Vilbergi Þorvaldssyni) með 71 leik og hefur jafnframt skorað flest mörk fyrir Víði í efstu deild, 18 talsins. Á ferli sínum lék Grétar alls 323 leiki og skoraði 159 mörk fyrir Víði. Grétar lék einnig með Keflavík, FH og Grindavík og spilaði þrjá A-landsleiki 1991 til 1992. Hann skoraði alls 34 mörk í 150 leikjum í efstu deild karla á Íslandi. Grétar spilaði síðasta leik sinn fyrir Víði árið 2008 og skoraði þá mark í sigri á Árborg í bikarleik 44 ára gamall. Eftir að Grétar hætti að spila með meistaraflokki var hann aðstoðarþjálfari hjá liðinu og sat í stjórn félagsins í fjölda ára, bæði aðalstjórn og unglingaráði. „Grétar Einarsson var frábær liðsmaður sem allir vildu hafa í sínu liði. Hann hafði mikið keppnisskap og sigurvilja og var mikill markaskorari. Það var líka alltaf stutt í grínið hjá Grétari og það var gaman að vera í kringum hann,“ segir í minningarorðum á fésbókarsíðu Víðis sem má sjá hér fyrir neðan.
Andlát Pepsi Max-deild karla Suðurnesjabær Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Körfubolti Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Fótbolti Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sjá meira