Fjörugt jafntefli í Bristol

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það gekk mikið á í leiknum í dag en hvorugu liði tókst að sækja sigurinn
Það gekk mikið á í leiknum í dag en hvorugu liði tókst að sækja sigurinn vísir/getty
Tommy Rowe tryggði Bristol City jafntefli gegn Middlesbrough í fyrsta leik dagsins í ensku Championship deildinni í dag.

Heimamenn í Bristol komust yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Kasey Palmer skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Niclas Eliasson.

Það var leikmaður Bristol sem jafnaði metin þegar Taylor Moore varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 64. mínútu. Britt Assombalonga kom Middlesbrough svo yfir fjórum mínútum seinna með sínu 100. deildarmarki.

Nokkuð gegn gangi leiksins jafnaði Rowe metin á 81. mínútu. Middlesdbrough var sterkari aðilinn í seinni hálfeik en náði ekki að sækja sér annað mark og þar með sigurinn og urðu lokatölur 2-2.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira