Endurkomusigur hjá Tottenham gegn nýliðunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kane fagnar marki í kvöld.
Kane fagnar marki í kvöld. vísir/getty
Tottenham vann endurkomusigur á Aston Villa, 3-1, er liðin mættust í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikið var í Lundúnum á nýja leikvangi Tottenham.

Nýliðarnir í Villa byrjuðu af krafti og eftir einungis níu mínútur skoraði John McGinn. Varnarmaðurinn Tyrone Mings þrumaði boltanum fram, McGinn tók vel við boltanum, lék á Danny Rose og skoraði.

Staðan var markalaus í hálfleik og allt þangað til á 73. mínútu en Tottenham náði þá loksins að jafna metin eftir mikla orrahríð.







Þar var að verki Tanguy Ndombele með góðu skoti en hann kom til Tottenham í sumar og varð um leið dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.

Allt stefndi í 1-1 jafntefli en það var svo markahrókurinn Harry Kane sem kom þeim yfir með marki fjórum mínútum frir leikslok. Boltinn féll fyrir hann í teignum og afgreiðslan frábær.

Kane var ekki hættur því í uppbótartíma var það aftur Kane sem skoraði. Hann fékk boltann á vítateigslínunni og skrúfaði boltann laglega í fjærhornið. Lokatölur 3-1.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira