Innlent

Bif­reið bilaði í Hval­fjarðar­­göngum og stöðvaði um­­­ferð

Eiður Þór Árnason skrifar
Vísir/Vilheilm
Umferð var stöðvuð í gegnum Hvalfjarðargöngin á fimmta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu bilaði bíll inn í göngunum og var því lokað fyrir umferð inn í göngin á meðan bílinn var dreginn út.

Lokunin er sögð hafa staðið yfir í sex til sjö mínútur. Á meðan því stóð safnaðist löng bílaröð beggja megin við göngin. Samkvæmt lögreglu hefur umferð í gegnum göngin nú færst í eðlilegt horf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×