Innlent

105 þúsund krónur lagðar inn á félagsmenn BSRB vegna seinagangs í kjaraviðræðum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Mynd/BSRB
Félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríkinu munu fá 105 þúsund króna innágreiðslu 1. ágúst frá vinnuveitanda vegna tafa sem orðið hafa á gerð kjarasamninga samkvæmt endurskoðaðri viðræðuáætlun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BSRB.

Viðræður eru í gangi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg um framhald kjaraviðræðna.

Í endurskoðaðri viðræðuáætlun sem aðildarfélög BSRB og samninganefnd ríkisins hafa gert með sér kemur fram að stefna eigi að því að ljúka gerð nýs kjarasamnings fyrir 15. september, en samningar flestra aðildarfélaga bandalagsins hafa verið lausir frá því í apríl.

Í samningaviðræðum sem staðið hafa yfir undanfarið hefur verið unnið að samkomulagi um útfærslu á styttingu vinnuvikunnar, launaþróunartryggingu og fleira. Bæði BSRB og samninganefnd ríkisins leggja áherslu á að vanda til við þá vinnu.

„Þetta eru flókin mál sem við erum að ræða, sér í lagi útfærslan á styttingu vinnuvikunnar fyrir vaktavinnuhópa. Við viljum gefa okkur góðan tíma í að ræða það enda mikilvægt að ná fram breytingum til að stuðla að bættri heilsu og vellíðan,“ er haft eftir Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB, í tilkynningu.

Í áætluninni segir að þar sem langt sé síðan kjarasamningar hafi runnið verði greidd innágreiðsla inn á nýja samninga.

Því fá starfsmenn ríkisins 105 þúsund króna greiðslu þann 1. ágúst vegna þessara tafa. Upphæðin miðast við fullt starf og fá starfsmenn í hlutastörfum greiðsluna í réttu hlutfalli við starfshlutfall. BSRB gerir eftir sem áður kröfu um að nýir kjarasamningar verði afturvirkir frá 1. apríl.

Þá sammælast BSRB og ríkið um það í áætluninni að friðarskylda ríki til 15. september. Hlé verður gert á viðræðum á meðan skrifstofa Ríkissáttasemjara er lokuð í sumar, „enda hefur reynslan sýnt að lítið gengur í kjaraviðræðum yfir hásumarið,“ segir í tilkynningu.


Tengdar fréttir

Ætla að setja aukinn þunga í viðræður á opinberum markaði

Á opinberum vinnumarkaði losnuðu í heildina 152 kjarasamningar um síðustu mánaðarmót. Þumalputtareglan er sú að almenni vinnumarkaðurinn semji á undan hinum opinbera og því hafa samningaviðræður þar verið á rólegri nótum.

Styttri vinnuvika hefur jákvæð áhrif

Niðurstöður tilraunaverkefnis um styttingu vinnuvikunnar sýna fram á jákvæð áhrif færri vinnustunda og eru þarft innlegg í kjaraviðræður opinbera vinnumarkaðsins.

Spyr hvort aðhaldskrafan þýði aukið álag á ríkisstarfsmenn

Oddný Harðardóttir, fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, spurði í fyrstu umræðu um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hvort aðhaldskrafa ríkisstjórnarinnar muni þýða aukið álag á ríkisstarfsmenn og niðurskurð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×