Spánverjar með fullt hús stiga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ramos kom Spánverjum á bragðið gegn Svíum.
Ramos kom Spánverjum á bragðið gegn Svíum. vísir/getty
Spánn vann 3-0 sigur á Svíþjóð á Santiago Bernabéu í Madríd í undankeppni EM 2020 í kvöld.

Spánverjar hafa unnið alla leiki sína í undankeppninni og eru með tólf stig á toppi F-riðils. Svíar eru í 2. sæti riðilsins með sjö stig.

Staðan var markalaus í hálfleik. Á 64. mínútu fengu Spánverjar vítaspyrnu. Fyrirliðinn Sergio Ramos fór á punktinn og skoraði. Þetta var sjöunda mark hans í síðustu átta leikjum fyrir spænska landsliðið.

Spánn fékk annað víti á 84. mínútu. Ramos leyfði Álvaro Morata að taka spyrnuna og hann skoraði.

Þremur mínútum síðar kom Mikel Oyarzabal, leikmaður Real Sociedad, Spáni í 3-0 með sínu fyrsta landsliðsmarki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira