Íslenski boltinn

Lacasse með þrennu er ÍBV rúllaði yfir Stjörnuna

Cloe Lacasse.
Cloe Lacasse. Vísir/Ernir
Cloe Lacasse skoraði þrennu í öruggum fimm marka stórsigri ÍBV á Stjörnunni í Pepsi Max deild kvenna í fótbolta í dag.

Lacasse kom heimakonum yfir strax á níundu mínútu á Hásteinsvelli. Hún nældi í víti eftir um hálftíma leik en Sigríður Lára Garðarsdóttir lét verja spyrnuna frá sér.

Það kom þó ekki að sök því tveimur mínútum síðar kom Emma Rose Kelly ÍBV í 2-0. Skotið hafði viðkomu í varnarmanni áður en það endaði í netinu svo það skráist líklega sem sjálfsmark. Staðan í hálfleik var 2-0 fyrir ÍBV.

Lacasse skoraði sitt annað mark á 54. mínútu leiksins eftir sendingu frá Emmu Kelly. Kelly var svo aftur á ferðinni á 66. mínútu þegar hún lagði upp fyrir Clöru Sigurðardóttur.

Lacasse fullkomnaði svo þrennuna á 69. mínútu með frábæru marki.

Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum, ÍBV vann sannfærandi 5-0 sigur.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×