Íslenski boltinn

„Gat ekki horft á mig í spegli eftir fyrstu tvo leikina“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir Skjámynd/SkagaTV
Ein efnilegasta knattspyrnukonan Vals ætlar að spila með Skagamönnum í Inkasso deild kvenna í sumar en mun reyna að hjálpa ÍA-liðinu að komast upp í efstu deild í fyrsta sinn síðan 2016.

Unglingalandsliðskonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er mætt upp á Skaga og fór af því tilefni í viðtal hjá Sigurði Elvari Þórólfssyni á SkagaTV.

Ólöf Sigríður er fædd árið 2003 og hefur skorað 8 mörk í 14 leikjum fyrir yngri landslið Íslands.

„Það er bara fínt að vera komin hingað. Mér fannst það frekar skrýtið fyrst og ég gat ekki horft á mig í spegli eftir fyrstu tvo leikina,“ sagði Ólöf Sigríður sem hefur nú skipt út rauða litnum fyrir þann gula.

„Meistaraflokkurinn er fullur í Val og Skagamenn höfðu samband. Ég skrifaði undir hjá Val en gerði lánssamning á sama tíma,“ sagði Ólöf Sigríður.

„Mér líður bara vel í hópnum. Þetta er skemmtilegur hópur og ég held að okkur muni ganga vel,“ sagði Ólöf Sigríður og segist stefna á þrjú efstu sætin.

Hún ætlar sér sjálf stóra hluti með Skagamönnum í sumar en hún hefur alltaf spilað sem framherji og skorað mikið af mörkum. „Mig langar að skora meira en fimmtán mörk,“ sagði Ólöf.

Fyrsti leikur ÍA í Inkasso-deildinni er á móti FH í næstu viku. FH-liðið féll úr Pepsi-deildinni síðasta haust.

Það má sjá allt viðtalið við Ólöfu hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×