Rúrik lagði upp og Willum spilaði í stórsigri Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. apríl 2019 13:12 Sandhausen er í fallbaráttu í B-deildinni vísir/getty
Rúrik Gíslason lagði upp mark Sandhausen í jafntefli við Paderborn í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag. Willum Þór Willumsson spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir BATE. Sandhausen fékk Paderborn í heimsókn og það voru heimamenn sem komust yfir í leiknum. Þeir fengu hornspyrnu á 17. mínútu sem íslenski landsliðsmaðurinn tók. Tim Kister var fyrstur í boltann og skallaði hann í netið. Það stefndi allt í að þetta yrði eina mark leiksins og Sandhausen tryggði sér mikilvægan sigur í fallbaráttunni en í uppbótartíma fékk Karim Guede sitt annað gula spjald, og því rautt, fyrir að handleika boltann innan vítateigs og var sendur út af. Hann hafði komið inn sem varamaður fyrir Rúrik á 61. mínútu. Paderborn fékk því vítaspyrnu, Phillipp Klement fór á punktinn og skoraði. Lokatölur urðu því 1-1 jafntefli. Sandhausen er með 27 stig í 15. sæti, síðasta örugga sæti deildarinnar, þremur stigum á undan Magdeburg sem á leik til góða. Í Hvíta-Rússlandi kom Willum Þór Willumsson inn á og spilaði sínar fyrstu mínútur í deildinni stórsigri BATE á Energetik-BGU. Willum, sem keyptur var til BATE fyrir tímabilið sem var að hefjast, hafði setið á varamannabekknum í fyrsta leik liðsins í deildinni en spilað tvo bikarleiki. Hann var aftur á bekknum í dag þegar BATE sótti Energetik heim en var skipt inn á á 71. mínútu fyrir Yevgeniy Berezkin. Þá var staðan 3-0 fyrir BATE. Igor Stasevich skoraði fjórða markið þremur mínútum seinna, lokatölur uðru 4-0. BATE situr á toppi hvít-rússnesku deildarinnar með fullt hús eftir tvær umferðir og markatöluna 6-0.
Fótbolti Mest lesið Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Körfubolti Sneypuför danskra til Lundúna Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Fleiri fréttir Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Sjá meira