Algjör martröð fyrir Rooney ef Liverpool verður enskur meistari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2019 08:30 Wayne Rooney fagnar í leik á móti Liverpool. Getty/Alex Livesey
Það er einn knattspyrnumaður utan herbúða Manchester City og Liverpool sem getur seint talist vera hlutlaus í baráttu félaganna um enska meistaratitilinn á þessu tímabili. Já við erum að tala um einn Wayne Rooney sem eyddi stærstum hluta síns fótboltaferils að spila með erkifjendum og nágrönnum Liverpool eða liðum Manchester United og Everton. Það þarf því kannski ekki að koma neinum á óvart að hann haldi með Manchester City eða hvað? Þrettán ár í Manchester United ættu nú að búa til talsverðan kala til City en það dugar þó ekki til að eyða út „hatri“ hans á Liverpool. Rooney gengur lengra en að halda bara með liði Manchester City því hann liggur eiginlega á bæn um að Liverpool nái ekki að verða Englandsmeistari í fyrsta sinn í 29 ára.“I couldn’t bear to see them win it, it would be a nightmare for any Evertonian." https://t.co/xmPUHBXw4C — talkSPORT (@talkSPORT) March 22, 2019Wayne Rooney ræddi baráttu Manchester City og Liverpool í útvarpsþætti talkSPORT og útskýrði af hverju hann heldur svona með Manchester City. „Það er frábær ástæða fyrir að búa erlendis þegar þessi tvö félög eru að berjast um enska titilinn,“ sagði Wayne Rooney í léttum tón í útvarpsviðtalinu. Wayne Rooney er að klára sinn feril í Bandaríkjunum þar sem hann spilar með liði D.C. United. Rooney skoraði einmitt þrennu á dögunum í leik með D.C. United í MLS-deildinni. „Ég vona að Manchester City komist á undan Liverpool yfir marklínuna. Ég gæti ekki þolað það að sjá Liverpool vinna. Það yrði algjör martröð fyrir mig sem Everton-mann,“ sagði Rooney. „Ég man árið 2005 þegar Liverpool vann Meistaradeildina og þeir eru enn þá að tala um þann sigur í dag. Þeir munu því örugglega tala um þennan titil í tíu eða fimmtán ár ef þeir vinna hann núna,“ sagði Rooney. Wayne Rooney er fæddur og uppalinn stuðningsmaður Everton. Hann spilaði líka með félaginu áður en hann seldur til Manchester United þar sem hann lék í þrettán ár og vann fjölda titla. Rooney endaði síðan feril sinn í ensku úrvalsdeildinni með Everton en fór síðan til Bandaríkjanna í fyrra.Wayne Rooney í leik á móti Liverpool á Anfield.Getty/Andrew Powell
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira