Erlent

Segja Barr ekki vera hlutlausan og vilja opinbera skýrslu Mueller

Samúel Karl Ólason skrifar
Nancy Pelosi og Chuck Schumer.
Nancy Pelosi og Chuck Schumer. Getty/Zach Gibson
Nancy Pelosi, leiðtogi Demókrataflokksins í fulltrúdeild Bandaríkjaþings, og Chuck Schumer, leiðtogi flokksins í öldungadeildinni, segja nauðsynlegt að opinbera skýrslu Robert Mueller, sérstaks rannsakanda Dómsmálaráðuneytisins, um Rússarannsóknina svokölluðu í heild sinni. Þau segja William P. Barr, dómsmálaráðherra, ekki vera hlutlausan og samantekt hans á skýrslunni varpi fram fleiri spurningum en svörum.

Þau segja einnig að yfirlýsingar Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um að skýrsla Mueller hreinsi hann af allri sök séu í þversögn við samantekt Barr og þeim eigi ekki að taka trúanlega.

„Með tilliti til opinberrar hlutdrægni Barr gagnvart rannsókn Mueller, er hann ekki hlutlaus og er ekki í stöðu til að leggja fram hlutlægt mat á niðurstöðum skýrslu Mueller,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu Pelosi og Schumer.

Þau sögðu þingið krefjast allrar skýrslunnar og þeirra gagna sem að henni hlúta. Það væri nauðsynlegt fyrir störf þingnefnda og að bandaríska þjóðin ætti rétt á því að sjá skýrsluna.

Bandamenn Donald Trump hafa tekið samantekt Barr fagnandi og jafnvel sagt hana hreinsa forsetann af allri sök, eins og hann sjálfur hefur haldið fram. Demókratar segja hins vegar nauðsynlegt að opinbera skýrsluna sjálfa.

Í samantekt Barr segir að Mueller hafi komist að þeirri niðurstöðu að starfsmenn forsetaframboðs Trump, eða aðilar sem tengdust því, hafi ekki með nokkrum hætti starfað með Rússum varðandi afskipti þeirra af kosningunum. Þrátt fyrir að þó nokkrir Rússar sem tengist yfirvöldum Rússlands hafi boðið framboðinu aðstoð.

Sjá einnig: Mueller segir Trump-liða ekki hafa verið í vitorði með Rússum



Þar segir einnig Mueller hafi ekki lagt mat á það hvort forsetinn hafi reynt að hindra framgang réttvísinnar. Það sé of flókið mál. Þess í stað tók hann saman margar yfirlýsingar og aðgerðir Trump sem mögulega væri hægt að flokka sem tilraunir til að hindra framgang réttvísinnar.

Barr segir Mueller taka sérstaklega fram að sú niðurstaða hans að leggja ekki mat á hvort ákæra eigi forsetann, sé hvorki til marks um sekt hans eða sakleysi.

Dómsmálaráðherrann bæti við að þar sem Mueller hafi ekki sagt til um það „falli það í hans skaut“ að segja til um það hvort að forsetinn hafi framið glæp. Hann og Rod Rosenstein, aðstoðardómsmálaráðherra, ákváðu að svo væri ekki.

Jerrold Nadler, Demókrati og formaður dómsmálanefndar fulltrúadeildarinnar, segir að Barr verði kallaður fyrir nefndina.

William Barr var skipaður í embætti Dómsmálaráðherra í síðasta mánuði. Hann var á árum áður ráðherra í forsetatíð George H.W. Bush en Trump tilnefndi hann eftir að hann rak Jeff Sessions úr embættinu. Þá hafði Trump lengi verið reiður út í Sessions vegna þess að hann lýsti sig vanhæfan varðandi Rússarannsóknina eftir að hann sagði ósatt um fundi með Sergei Kislyak, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum.

Barr sendi í fyrra 20 tuttugu blaðsíðna minniblað óumbeðinn til Dómsmálaráðuneytisins þar sem hann gagnrýndi rannsókn Mueller harðlega og sagði hana hafa farið úr böndunum. Hann deildi minnisblaðinu einnig með lögmönnum Trump.



Varaði hann við því að ef dómsmálaráðuneytið leyfði Mueller að halda áfram á sömu braut hefði það „grafalvarlegar afleiðingar langt umfram mörk þessa máls og ylli varanlegum skaða á forsetaembættinu og framkvæmd laga innan framkvæmdavaldsins“.

Sagðist hann telja nálgun Mueller „frámunalega óábyrga“ með „mögulega hörmulegar afleiðingar“. Forseti gerist aðeins sekur um hindrun á framgangi réttvísinnar ef hann skipar vitnum að ljúga eða eyðileggur sönnunargögn.

Þegar hann mætti fyrir dómsmálanefnd öldungadeildarinnar í janúar rifjuðu þingmenn Demókrataflokksins upp fyrri ummæli Barr þar sem hann hafði lýst því yfir að forseti Bandaríkjanna gæti í raun stýrt löggæslu- og dómsmálum, jafnvel þó þau vörðuðu hann sjálfan.

Þingmaðurinn Chris Murphy (Demókrati) sagði á Twitter í kvöld að mögulega væri mat Barr réttmætt. Það væri hins vegar ótækt að að bandamaður Trump, sem hefði verið skipaður í embætti vegna andstöðu hans gagnvart rannsókninni, ætti að fá að segja til um hvað væri í skýrslu Mueller.


Tengdar fréttir

Svona tókst Mueller og félögum að koma í veg fyrir leka úr rannsókninni

Ótrúlegt þykir að lítið sem ekkert hafi lekið í fjölmiðla frá Robert Mueller og sérstöku rannsóknarteymi hans þau tvö ár sem teymi hans hefur rannsakað afskipti Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2016 og mögulegum tengslum við framboðs Donald Trump Bandaríkjaforseta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×