Þrjú mörk og stoðsending frá Giroud í stórsigri

vísir/getty
Oliver Giroud skoraði þrjú mörk er Chelsea rúllaði yfir Dynamo Kiev, 5-0, í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Samanlagt 8-0 sigur Lundúnarliðsins.

Það voru ekki liðnar fimm mínútur er fyrsta markið kom en það gerði Frakkinn Oliver Giroud. Hann bætti við öðru marki á 33. mínútu og Marcos Alonso skoraði þriðja mark Chelsea á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.







Chelsea-menn voru ekki hættir í síðari hálfleiks. Eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik fullkomnaði Giroud þrennuna eftir stoðsendingu frá Brasilíumanninum Willian.

Callum Hudson-Odoi hafði verið afar sprækur í leiknum og lagði meðal annars upp þriðja mark Chelsea. Hann skoraði fimmta og síðasta mark Chelsea eftir sendingu frá títtnefndum Giroud.

Lokatölur 5-0 sigur Chelsea í Kænugarði og þeir eru komnir í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar. Dregið verður á morgun í næstu umferð.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira