Bíó og sjónvarp

Myndirnar sem beðið er eftir árið 2019

Birgir Olgeirsson skrifar
Leonardo DiCaprio og Brad Pitt leika aðalhlutverkin í Tarantino-myndinni Once Upon a Time in Hollywood.
Leonardo DiCaprio og Brad Pitt leika aðalhlutverkin í Tarantino-myndinni Once Upon a Time in Hollywood.
Það eru vafalaust margir sem bíða spenntir eftir brakandi ferskum kvikmyndum í bíóhúsin á nýju ári. Hér fyrir neðan má sjá upptalningu á þeim myndum sem eru taldar eiga eftir að njóta ýmist mikilla vinsælda eða vekja einstaka athygli á árinu 2019.

Avengers: Endgame

Fyrst á blað er ofurhetjumyndin Avengers: Endgame. Myndin er beint framhald Avengers: Infinity War en hún mun fjalla um eftirköst fingrasmells Thanosar og hvernig Tony Stark og félagar ná að snúa þeim gjörningi við, ef það tekst yfir höfuð. Myndin er væntanlega í kvikmyndahús 26. apríl næstkomandi og verður væntanlega á topplistum yfir vinsælustu kvikmyndir ársins.

Joker

Hér fer stórleikarinn Joaquin Phoenix í hlutverk trúðsins sem almennt er talinn eitt hættulegasta illmennið sem Batman og félagar hafa þurft að eiga við. Er um að ræða nokkurskonar upprunasögu Jókersins en Phoenix mun leika mann sem hefur reynt eftir að veikum mætti að slá í gegn sem uppistandari.

Leikstjóri myndarinnar er Todd Phillips en myndin er innblásin af teiknimyndasögu Alan Moore en myndin sjálf mun ekki hafa nein tengsl við DC-kvikmyndaheiminn sjálfan. Þar hefur Jared Leto til dæmis leikið trúðinn í Suicide Squad.

Myndin verður frumsýnd 4. október.

Toy Story 4

Fjórða myndin í þessari geysivinsælu teiknimyndaseríu. Fyrsta myndin kom út fyrir nærri aldarfjórðungi, eða árið 1995, en nú er leikföngin komin í eigu Bonnie. Þurfa Buzz Lightyear Woody og Herra Kartöfluhaus að aðlagast nýjum leikföngum og ekki allt eins og á verður kosið.

Myndin verður frumsýnd 21. júní.

The Lego Movie 2: The Second Part

Fyrri myndin varð afar vinsæl fyrir nokkrum árum síðan og varð til þess að nokkrar aðrar Lego-myndir litu dagsins ljós. Myndin gerist fimm árum eftir atburði fyrstu Lego-myndarinnar en að þessu sinni þarf aðalsöguhetjan Emmet að eiga við Sweet Mayhem sem ferðaðist frá framandi stað til jarðarinnar til að ræna vinum hans Emmet.

Myndin verður frumsýnd 8. febrúar.

Captain Marvel

Um er að ræða fyrstu Marvel-myndin þar sem ofurkona er í aðalhlutverki, Carol Danvers, en hún er leikin af Óskarsverðlaunahafanum Brie Larson. Captain Marvel er sögð öflugasta ofurhetja Marvel heimsins en hún gerist nokkrum áratugum á undan Marvel-atburðunum sem áhorfendur hafa fylgst með undanfarin ár.

Myndin verður frumsýnd 8. mars næstkomandi. 

Us

Önnur mynd Óskarsverðlaunahafans Jordan Peele sem sló rækilega í gegn með myndinni Get Out. Hann sjálfur hefur lofað hreinræktaðri hrollvekju í þetta skiptið en með aðalhlutverk fara Winston Duke og Óskarsverðlaunahafinn Lupita Nyong´o. Myndin segir frá fjölskyldu sem er hrellt af dularfullum hópi sem inniheldur afmyndaða tvífara þeirra. 

Myndin verður frumsýnd 15. mars

Dumbo

Tim Burton er leikstjóri þessarar myndar en um er að ræða leikna mynd með Evu Green og Colin Farrell í aðalhlutverkum. Um er að ræða sígilda Disney-sögu um fílinn Dumbo sem er með risavaxin eyru sem gera honum kleift að fljúga.

Myndin verður frumsýnd 29. mars

Shazam

DC-kvikmyndaheimurinn stækkar ögn með tilkomu þessarar myndar sem segir frá ungum dreng sem öðlast ofurkrafta á undraverðan hátt. 

Myndin verður frumsýnd 5. apríl

Pet Sematary

Myndin er byggð á samnefndri sögu rithöfundarins Stephen King. Myndin mun segja frá fjölskyldu sem flytur á afskekktan stað og verður fyrir ýmsum skakkaföllum. Kötturinn þeirra drepst er hann verður fyrir bíl og ákveður fjölskyldufaðirinn að grafa hann í nálægum gæludýragrafreit og upphefst þá óhugnanleg atburðarás.

Myndin verður frumsýnd 5. apríl

John Wick: Chapter 3

Þriðja myndin um leigumorðingjann John Wick sem þarf heldur betur að taka á honum stóra sínum, í þriðja skiptið. Hér er ekki verið að finna upp hjólið, bara gamaldags hasar sem gleður augað.

Myndin verður frumsýnd 17. maí.

Rocketman

Fannst þér Bohemian Rhapsody, myndin um bresku sveitina Queen, skemmtileg? Þá hefur þú eitthvað til að hlakka til því væntanleg er mynd um breska tónlistarmanninn Elton John. Leikstjórinn er Dexter Fletcher sem kom að gerð Bohemian Rhapsody eftir að Bryan Singer var rekinn úr leikstjórastólnum.

Hinn ungi og efnilegi Taron Egerton leikur tónlistarmanninn í þessari mynd sem verður frumsýnd 17. maí.

Aladdin

Þetta er leikin mynd frá leikstjóranum Guy Ritchie en margir muna eflaust eftir samnefndri teiknimynd. Will Smith mun leika andann í þessari mynd en Robin Williams heitinn ljáði andanum rödd sína í teiknimyndinni með eftirminnilegum hætti.

Myndin verður frumsýnd 24. maí 

Godzilla: King of Monsters

Það eru til stórslysmyndir og svo eru það hamfaramyndir. Þessi fellur væntanlega í annan hvorn flokkinn en öll heimsbyggðin er væntanlega undir þegar Godzilla þarf að kljást við ófreskjur til að bjarga jörðinni frá tortímingu.

Myndin verður frumsýnd 31. maí 

X-Men: Dark Phoenix

Um er að ræða tólftu X-Men-myndina en hún er beint framhald X-Men: Apocalypse sem kom út árið 2016. Í þetta skiptið þurfa X-Men að standa saman gegn sínum eigin liðsfélaga þegar hið myrka afl, Dark Phoenix, tekur yfir líkama hennar.

Myndin verður frumsýnd 7. júní.

Men In BlackInternational

Fjórða myndin um svartklæddu mennina en í þetta skiptið eru Will Smith og Tommy Lee Jones fjarri góðu gamni. Chris Hemsworth og Tessa Thompson taka við keflinu en þau sáust síðast saman í myndinni Thor: Ragnarök. 

Myndin verður frumsýnd 14. júní. 

Spider-Man: Far From Home

Peter Parker fer í mikla Evrópureisu en skilur búninginn eftir heima. Það vill þó væntanlega enginn horfa á Spider-Man mynd án Kóngulóarmannsins og elta vandræðin hann uppi. Hann nýtur liðsinnis Nick Fury, leikinn af Samuel L. Jackson, og hittir fyrir ómennið Mysterion, leikinn af Jake Gyllenhall.

Myndin verður frumsýnd 5. júlí 

The Lion King

Endurgerð á þessu sívinsæla Disney-ævintýri þar sem Donald Glover talar fyrir Simba, Beyoncé fyrir Nölu og James Earl Jones snýr aftur sem Mufasa.

Myndin verður frumsýnd 19. júlí

Once Upon a Time in Hollywood

Leikstjórinn Quentin Tarantino ræðst ekki í garðinn þar sem hann er lægstur í næstu mynd. Umfjöllunarefnið er meðal annars ódæði Manson-fjölskyldunnar en myndin mun segja frá tveimur félögum, sem Leonardo DiCaprio og Brad Pitt leika, sem vonast til að slá í gegn í kvikmyndabransanum undir lok sjöunda áratugar síðustu aldar.

Myndin verður frumsýnd 26. júlí næstkomandi.

Fast & Furious PresentsHobbs and Shaw



Þetta verður væntanlega harðasta myndin í ár. Segir frá Hobbs og Shaw, sem Dwayne Johnson og Jason Statham leika, sem hafa slegist áður í Fast & the Furious-myndunum. Hér fá þeir sína eigin mynd en Idris Elba og Vanessa Kirby munu einnig leika í henni.

Myndin verður frumsýnd 26. júlí. 

It: Chapter Two

Um er að ræða framhald myndarinnar It sem kom út árið 2017 og gerði það að verkum að margir urðu logandi hræddir við að líta í átt að göturæsum. It er skáldsaga eftir Stephen King en fyrri myndin sagði frá hvarfi hins sjö ára gamla Georgie og hvernig hið illa afl, sem var kallað IT, herjaði á unga krakka. Í seinni myndinni er vinahópurinn orðinn 27 árum eldri og staðráðinn í að ráða niðurlögum þessarar óværu.

Myndin verður frumsýnd 6. september.

Downton Abbey

Fjórum árum eftir að Downton Abbey sjónvarpsseríunni lauk fá aðdáendur loksins að sjá kvikmyndina.

Myndin verður frumsýnd 20. september

The Goldfinch

Byggð á samnefndri sögu Donnu Tartt sem hlaut Pulitzer-verðlaunum. Myndin fjallar um líf Theodore Decker frá því að hann kemst lífs af frá hryðjuverkaárás á Metropolitian-listasafninu þar sem móðir hans lætur lífið. Í ringulreiðinni sem skapast tekur hann óvart með sér hollenska málverkið sem kallast The Goldfinch en verkið veitir honum mikinn innblástur. Hann er settur í fóstur hjá auðugri fjölskyldu en fetar glæpabrautina og flækist í listaverkafölsun. Með aðalhlutverk í myndinni fara Nicole Kidman og Luke Kleintank.

Myndin verður frumsýnd 11. október 

Terminator-mynd

Myndin hefur ekki hlotið titil en Arnold Schwarzenegger verður í henni sem T-800 vélmennið sem allir elska. Linda Hamilton bregður sér einnig aftur í hlutverk Söruh Connor. Síðast sást Arnie í Terminator: Genesys árið 2015.

Myndin verður frumsýnd 1. nóvember

Star Wars: Episode IX



Níunda Stjörnustríðsmyndin verður frumsýnd í desember en leikstjórinn J.J. Abrams snýr aftur. Um er að ræða síðustu myndina í þessum sögukafla og verða því væntanlega málalok á þeirri framvindu sem hófst með myndinni The Force Awakens sem Abrams leikstýrði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×