Solskjær: Held að Pogba verði áfram Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. apríl 2019 09:30 Norðmaðurinn tók við Manchester United nokkrum dögum fyrir jól. vísir/getty
Ole Gunnar Solskjær heldur að Paul Pogba verði ennþá leikmaður Manchester United á næsta tímabili en gat þó ekki sagt það með fullri vissu. Solskjær sat fyrir svörum blaðamanna í morgun og voru heitustu mál fundarins mál Paul Pogba og David de Gea. Pogba hefur ítrekað verið orðaður frá Manchester United, eftir að Jose Mourinho var rekinn duttu þær sögusagnir niður en nú eru þær farnar að heyrast hærra á ný í ljósi þess að United er líklegt til þess að missa af Meistaradeildarsæti. „Ég held hann verði hér áfram á næsta tímabili,“ sagði Solskjær á blaðamannafundinum. „Paul hefur verið frábær fyrir okkur. Við viljum að hann geri vel og hann er leiðtogi inn í búningsherberginu.“ „Ef ég gæti fullvissað ykkur um það að hann yrði áfram myndi ég segja það, en það er ekki hægt. Ég held samt hann verði hér.“David de Gea hefur fengið mikla gagnrýni síðustu daga og vikur fyrir endurtekin mistök í marki Manchester United. Fyrrum markmaður United, Gary Bailey, sagði á dögunum að de Gea ætti að vera bekkjaður í stórleiknum gegn Chelsea á Old Trafford um helgina. Solskjær var ekki lengi að skjóta þeirri hugmynd niður. „Nei. Ég treysti honum,“ sagði Norðmaðurinn. „Hann er besti leikmaðurinn sem við höfum haft síðustu sex, sjö ár. Hann verður í góðu lagi.“ Leikur Manchester United og Chelsea er stórleikur í baráttunni um fjórða sætið. Hann hefst klukkan 15:30 á sunnudag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta skammarlegt“ Handbolti Skotinn til bana í jarðarför móður sinnar Fótbolti Skipti Orra inn og út á nokkrum mínútum: „Óásættanlegt“ Fótbolti Hlaupabrettið kemst ekki upp í hraða Baldvins Sport Meðalaldur íslenska landsliðsins einn sá hæsti á EM Handbolti Mætum „Napóleon“ og lærisveinum hans í fyrsta leik á EM í handbolta Handbolti Meiðslamartröð Orra um að kenna en ekki leiðinlegum þjálfara Fótbolti City fer með góða forystu inn í seinni leikinn gegn Newcastle Fótbolti Breiðablik leitar að leikmönnum en reglur UEFA flækja málin Fótbolti Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benóný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Myndi ekki neita ef Carrick byði honum í sitt teymi Búast við því að Carrick verði kynntur hjá United innan tíðar Mátti ekki koma inn á vegna þess að hún var með eyrnalokk Fæstir leikir hjá Man Utd síðan í fyrri heimsstyrjöld Mætir Liverpool en fær gæsahúð þegar hann heyrir „You'll Never Walk Alone“ Carrick nú talinn líklegastur til að taka við Man Utd „Myndum að sjálfsögðu taka honum opnum örmum“ Mikel Arteta hrósaði Arne Slot Bruno Fernandes hakkaður í gærkvöldi Dagskráin í dag: Liverpool í bikarnum og síðasta lausa sætið í NFL Solskjær ekki lengur líklegastur Fletcher segir leikmenn Man. Utd viðkvæma Veik von Man. Utd um titil úr sögunni Loksins unnu Hamrarnir eftir framlengdan leik Martinelli og hornspyrnur hetjurnar Bradley frá út tímabilið | Fer Liverpool á markaðinn? Viðsnúningur hjá Leeds sem fer áfram Miðvarðaæði Liverpool Minntust nýlátins félaga og foreldrarnir mættu í klefann Nýr stjóri Chelsea fékk óskabyrjun Draumur Villa lifir en eru dagar Franks taldir? Sjá meira