„Hinn himneski lúðraþytur víkur fyrir listrænu lúðraleysi“ Stefán Árni Pálsson skrifar 26. október 2018 11:30 Árni Vilhjálmsson hefur í gegnum tíðina vakiði athygli fyrir það að vera söngvari í sveitinni FM Belfast. „
Mig langaði bara að gera eitthvað sem hefur aldrei verið gert áður. Gefa út lag með trompetsólói í lokin og gefa það svo út aftur 6 dögum seinna án trompetsins. Það hefur aldrei verið gert áður svo ég viti til,“ segir tónlistarmaðurinn Árni Vilhjálmsson sem hefur gefið út sama lagið í mismunandi útgáfum með nokkurra daga millibili. Lagið ber nafnið Sides en fyrri útgáfan endar á fallegu trompetsólói en seinni útgáfan er án þess. Vísir heyrði hljóðið í nokkrum listspekúlöntum og fékk þeirra álit á uppátæki Árna. „Þegar ég frétti að Árni væri að hugsa um að endurútgefa Sides án trompets fékk ég þá hugmynd að gera lasanjað mitt án hvítlauks. Og viti menn, þakið ætlaði að rifna af húsinu. Stórt eldfast mót þurrkaðist upp á núll einni og ég þurfti vinsamlegast að gyrða mig í brók og búa til meira. Ég mun héðan í frá alltaf gera lasanja án hvítlauks þökk sé Árna Vil og hans frábæru hugmynd að sleppa trompetinu. Takk Árni,“ segir Ragnar Ísleifur Bragason sviðslistamaður.Víkur fyrir listrænu lúðraleysi „Endurútgáfa Sides með Árna Vil markar mikil tímamót. Lagið er nú borið á borð án trompets, en slík trompet-endurskoðun, hefur ekki farið í fram í tónlistarsögunni síðan Händel endurskoðaði hlut trompetsins í Messíasar-óratoríunni. Árni Vil er nýr Händel. Árni Vil er nýr Messías,“ segir Bergur Ebbi listspekúlant. „Hinn himneski lúðraþytur víkur fyrir listrænu lúðraleysi. Þessi ákvörðun Árna markar vatnaskil í vestrænni tónlistarsögu, nýtt upphaf þar sem stoðum hennar hefur verið kollvarpað. Öld Árna er hafin,“ segir Þrándur Þórarinsson listmálari. „Mér fannst eins og hann væri að vanvirða langa hefð tónlistar og jafnvel listasögunnar allrar með því að taka út þennan trompet. En núna sé ég hversu hugrakkt og mikilvægt skref þetta er. Með þessu brýtur Árni niður fjörgamla veggi og ryður braut annarra listamanna sem á eftir honum munu koma. Ég hef strax tekið mér þennan hugsunarhátt til fyrirmyndar og hef sleppt því að öskra á leiksviði, aðra hverja sýningu. Útkoman er hreint út sagt stórkostleg,“ segir Jörundur Ragnarsson leikari. Hér að neðan má bera saman þessar tvær útgáfur..
Mest lesið Ætlaði aldrei að enda í herskóla í Bandaríkjunum Lífið „Ég er búin að fæða þrjú börn en þetta er versta sem ég hef upplifað“ Lífið Þakka aðdáendum fyrir að hafa fjármagnað nýja húsið Lífið „Ye mátti þola versnandi andlega heilsu vegna gjörða þinna“ Lífið Með höfuðið rétt skrúfað á og gleyma aldrei hjálminum Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Rafmagnsleysi, njósnir og SFS Lífið BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Lífið samstarf Íslenski Eurovision-hópurinn lagður af stað Lífið Fleiri fréttir Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira