Sjóðheitur Gylfi spenntur fyrir borgarslagnum gegn Liverpool Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. nóvember 2018 11:00 Gylfi Þór skoraði eina markið á móti Aroni Einari og félögum. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, og félagar hans eiga stórleik um helgina en þeir mæta Liverpool í borgarslag á sunnudaginn. Everton er á fínum skriði þessa dagana en liðið er búið að finna fimm af síðustu sjö leikjum sínum þar sem Gylfi hefur verið sjóðheitur. Hann er í heildina búinn að koma með beinum hætti að átta mörkum á tímabilinu (sex mörk og tvær stoðsendingar). Gylfi er enn fremur búinn að skapa 32 marktækifæri fyrir liðsfélaga sína en hann er á meðal þeirra bestu í deildinni þegar kemur að þeim tölfræðiþætti. Aðeins stórstjörnurnar Eden Hazard og Willian hjá Chelsea og David Silva hjá Manchester City skáka íslenska landsliðsmanninum þar. „Allir strákarnir eru búnir að bíða eftir borgarslagnum frá upphafi leiktíðar. Spennan hefur bara orðið meiri eftir því sem við fórum að spila betur síðustu mánuði,“ segir Gylfi í viðtali við heimasíðu Everton. „Við getum byggt á frammistöðunni gegn Chelsea. Við náðum góðum úrslitum þar og fylgdum því eftir með sigri á móti Cardiff,“ segir Gylfi sem skoraði eina markið í 1-0 sigri í Íslendingaslagnum. Liverpool er ekki mikið að fá á sig mörk en liðið er aðeins búið að hirða boltann úr netinu fimm sinnum í fyrstu þrettán leikjum tímabilsins. Gylfi, aftur á móti, hefur oft spilað vel á Anfield en hann á að baki fjögur mörk á móti Liverpool á útivelli, þar á meðal sigurmörk fyrir Reading og Swansea.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira