Hafa alltaf unnið í Garðabænum síðan Ólafur tók við Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. ágúst 2018 10:00 Ólafi Jóhannessyni hefur gengið vel í Garðabænum síðan hann tók við Val fyrir fjórum árum. Fréttablaðið/Ernir
Tvö efstu lið Pepsi-deildar karla, Stjarnan og Valur, mætast á Samsung-vellinum í kvöld. Valsmenn eru með þriggja stiga forskot á Stjörnumenn og stíga stórt skref í áttina að því að verja Íslandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld. Vinni Garðbæingar tylla þeir sér hins vegar á topp deildarinnar. Síðan Ólafur Jóhannesson tók við Val hefur liðið unnið alla þrjá deildarleiki sína gegn Stjörnunni á Samsung-vellinum. Í stjórnartíð Ólafs hafa Valur og Stjarnan mæst átta sinnum í deild og bikar. Valsmenn hafa unnið fjóra leiki, Stjörnumenn tvo og tveir endað með jafntefli. Fyrri deildarleikur liðanna í sumar fór 2-2. Valsmenn hafa verið á afar góðu skriði að undanförnu og eru taplausir í síðustu tólf deildarleikjum sínum. Eftir markalaust jafntefli við Fylki í 14. umferð hefur Valur unnið þrjá síðustu leiki sína og skorað samtals tólf mörk í þeim. Patrick Pedersen fór rólega af stað í sumar en hefur skorað níu mörk í seinni umferðinni. Pedersen er næstmarkahæstur í Pepsi-deildinni með 13 mörk, tveimur mörkum minna en Stjörnumaðurinn Hilmar Árni Halldórsson. Stjarnan tapaði fyrir KR í 13. umferð en hefur náð í tíu stig af tólf mögulegum síðan þá, auk þess sem Garðbæingar tryggðu sér sæti í bikarúrslitum með sigri á FH-ingum. Stjarnan hefur tapað tveimur leikjum í sumar, báðum gegn KR. KR-ingar eru jafnframt eina lið deildarinnar sem hefur haldið hreinu gegn Stjörnumönnum í sumar. Stjarnan hefur alls skorað 39 mörk, flest allra í Pepsi-deildinni. Leikurinn á Samsung-vellinum í kvöld hefst klukkan 19.15. Dómari er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.
Birtist í Fréttablaðinu Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Enski boltinn Besta sætið: Verðandi meistarar eða meiðslapésar? Sport Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Enski boltinn Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Enski boltinn Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Fótbolti „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ Fótbolti Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Enski boltinn Fleiri fréttir Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra Sjá meira