Rodriguez stal stigi fyrir West Brom Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. desember 2018 22:03 Leikmenn West Brom fagna marki Rodriguez vísir/getty
Jay Rodriguez tryggði West Bromwich Albion stig á móti Aston Villa á heimavelli í ensku B-deildinni í fótbolta í kvöld með umdeildu marki. Aston Villa er á góðu flugi í deildinni og náði í 13 stig, það eru fjórir sigrar og eitt jafntefli, úr síðustu fimm leikjum sínum. Sigur í kvöld hefði komið þeim upp í sjötta sætið, síðasta umspilssætið um úrvalsdeildarsæti í lok tímabils, en jafntefli þýðir að Villa er áfram í áttunda sætinu, tveimur stigum frá umspilssætinu. Villa hafði verið með forystuna frá 60. mínútu og stefndi í fimmta sigurinn í sex leikjum þegar Rodriguez skoraði jöfnunarmarkið fyrir West Brom í uppbótartíma. Rodriguez skallaði boltann inn á nærstönginni en knötturinn virtist hafa átt viðkomu í hendi Rodriguez áður en hann fór inn. Dómararnir ræddu málið sín á milli og komust að þeirri niðurstöðu að markið væri gilt. Leikmenn Villa geta þó sjálfum sér um kennt að hafa ekki nýtt færin sem þeir fengu í seinni hálfleik til þess að gera út um leikinn. Anwar El Ghazi kom Villa yfir í upphafi leiks þegar hann fékk tíma og pláss til þess að skjóta boltanum í átt að marki. Boltinn hafði viðkomu í tveimur varnarmönnum West Brom áður en hann hafnaði í markinu og verður að öllum líkindum skráð sem sjálfsmark. Heimamenn í West Brom náðu að jafna fyrir hálfleikinn með marki frá Dwight Gayle og var staðan 1-1 í hálfleik. El Ghazi kom Villa aftur yfir og í þetta skipti var enginn vafi um hver átti markið. Frábært skot fyrir utan teig sem El Ghazi smurði í hornið. Tammy Abraham átti tvö mjög góð færi stuttu seinna og Villa vildi fá vítaspyrnu þegar hann fór niður í teignum á 80. mínútu en fengu ekki. Niðurstaðan 2-2 jafntefli sem leikmenn og stuðningsmenn Villa sjá þó líklega frekar sem tap. Birkir Bjarnason var ekki í leikmannahóp Villa því hann er enn að ná sér af nárameiðslum.
Enski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira