Gylfi í liði umferðarinnar hjá BBC Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. október 2018 08:00 Gylfi Þór SIgurðsson fagnar marki á móti Fulham. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson komst heldur betur aftur í gang í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina þegar að Everton vann flottan og sannfærandi sigur á nýliðum Fulham, 3-0. Gylfi skoraði tvö af þremur mörkum Everton í leiknum og fékk tækifæri til að skora þrennu en hann brenndi af vítaspyrnu. Þetta var í fyrsta sinn sem að hann klúðrar vítaspyrnu í ensku úrvalsdeildinni. Garth Crooks, sérfræðingur BBC um ensku deildina, velur Gylfa í lið umferðarinnar fyrir frammistöðu sína en Crooks hefur valið lið vikunnar um árabil og er þetta ekki í fyrsta sinn sem íslenski landsliðsmaðurinn er á meðal þeirra ellefu bestu. Gylfi er á miðjunni með Mark Noble sem lagði Manchester United með West Ham en á vængjunum í 3-4-3 kerfi Garth Crooks eru Mesut Özil og Gigi Wijnaldum. „Það er fátt sem kemur mér meira á óvart í fótbolta en að sjá leikmenn sem geta skorað glæsileg mörk af löngu færi eiga í basli með að skora einföld mörk. Gylfi skoraði tvö falleg mörk á móti Fulham en klúðraði víti,“ segir Crooks um Gylfa. Einnig kemur fram að Gylfi skapaði fimm færi fyrir félaga sína í leiknum en enginn gerði betur í Everton-liðinu. Gylfi er á meðal hæstu manna í deildinni þegar kemur að því að skapa færi fyrir samherja sína.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira