Hryggðarmynd í sýningu í Leikhúsi draumanna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. október 2018 09:00 José Mourinho er í basli hjá United. vísir/getty
Það þarf að fara aftur til ársins 1989 til að finna verri byrjun hjá Manchester United á tímabili. Þá, á þriðja heila tímabili Sir Alex Ferguson við stjórnvölinn, var United með sjö stig eftir fyrstu sjö umferðirnar. Í ár er uppskeran eftir fyrstu sjö umferðirnar tíu stig. United situr í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með jafn mörg stig og Bournemouth. United hefur aðeins skorað tíu mörk en fengið á sig tólf. Aðeins fjögur lið hafa fengið á sig fleiri mörk. United mætti West Ham í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og tapaði 3-1. Þetta þriðji leikur United á einni viku og það vægast sagt skelfilegri viku. United gerði 1-1 jafntefli við nýliða Wolves á heimavelli um þarsíðustu helgi, féll svo úr leik fyrir B-deildarliði Derby County í 3. umferð deildabikarsins og tapaði loks fyrir West Ham sem leit liða verst út í upphafi tímabils. José Mourinho er í vandræðum sem hann virðist ekki vita hvernig hann á að klóra sig út úr. Upplegg hans gegn West Ham var gríðarlega varfærið en samt fékk United á sig þrjú mörk. Eins og oft áður tók Mourinho enga ábyrgð og kenndi öllum öðrum um eftir leikinn. „Fyrsta markið var rangstaða, annað markið var sjálfsmark og það þriðja kom eftir dómaramistök. En við verðum að byrja næsta leik betur,“ sagði Portúgalinn.Byrjunin á tímabilinu minnir ískyggilega mikið á byrjunina hjá Chelsea á tímabilinu 2015-16. Þá, líkt og nú, byrjaði Mourinho að kvarta og kveina um leið og undirbúningstímabilið hófst og hélt því áfram þangað til hann var rekinn rétt fyrir jól. Þá hafði Chelsea tapað níu af fyrstu 16 leikjum sínum og sat í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, einu stigi fyrir ofan fallsæti. Þá, líkt og nú, eyddi Mourinho miklu púðri í að deila við óvini sína, ímyndaða eða ekki. Fyrir þremur árum byrjaði hann tímabilið á að trompast eftir að læknirinn Eva Carneiro hljóp inn á í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar til að hlúa að Eden Hazard, leikmanni sem Mourinho lenti einnig upp á kant við síðasta tímabilið sitt hjá Chelsea. Núna stendur Mourinho í barnalegri valdabaráttu við Paul Pogba, farsa sem þeir koma báðir illa út úr. Franski miðjumaðurinn gagnrýndi leikstíl Mourinhos eftir leikinn gegn Wolves. Portúgalinn svaraði fyrir sig með því að leysa hann undan störfum varafyrirliða. Á æfingasvæðinu daginn eftir leikinn gegn Derby áttu Pogba og Mourinho svo í einhverjum orðahnippingum. Pogba gaf Barcelona undir fótinn í upphafi tímabils en miðað við frammistöðu hans í leiknum gegn West Ham, og mörgum öðrum leikjum á tímabilinu, munu Börsungar ekki snerta á honum, nema með töngum. Pogba hefur engan veginn fylgt eftir góðri frammistöðu á HM.Mourinho þungt hugsi á bekknum.vísir/gettyÁbyrgðin á slæmu gengi United í upphafi tímabils liggur ekki bara hjá Pogba og Mourinho heldur einnig hjá hæstráðendum félagsins. Ed Woodward virðist vera frábær viðskiptamaður en fótboltavitið reiðir hann ekki í þverpokum. Hann hefur þegar látið tvo knattspyrnustjóra, David Moyes og Louis van Gaal, fara síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá United fyrir fimm árum. Hann stendur nú frammi fyrir þeirri stóru spurningu hvað hann eigi að gera við Mourinho, mann sem hann réð til að koma United aftur á toppinn. Þótt Woodward hafi staðið þétt við bakið á Mourinho, allavega út á við, gróf hann undan honum þegar hann neitaði að kaupa þá miðverði sem voru efstir á óskalista Portúgalans. Mourinho getur þó ekki kvartað yfir því að hafa ekki fengið fjármuni til að spila úr síðan hann tók við United. Samt er árangurinn ekki merkilegur og liðinu hefur farið aftur. Þótt United hafi lent í 2. sæti á síðasta tímabili, sem er besti árangur liðsins síðan Ferguson hætti, var bilið á milli þeirra og toppliðs Manchester City 19 stig. Mourinho hefur aðeins einu sinni verið lengur en þrjú tímabil hjá liði og þá var hann rekinn þegar fjórða tímabilið var nokkurra vikna gamalt. Það kæmi mikið á óvart að hann yrði við stjórnvölinn hjá United þegar næsta tímabil hefst, og jafnvel þegar árið 2019 gengur í garð. Mögulegir eftirmenn eru hins vegar ekki margir, nema Zinedine Zidane, sem ku samkvæmt fjölmiðlum ytra vera byrjaður að læra ensku, og það er mögulega það eina sem heldur Mourinho í starfi. Uppskeran og spilamennskan það sem af er tímabili gerir það allavega ekki mikið lengur.
Enski boltinn Mest lesið Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Fótbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira