Mourinho hefur grætt vel á því að vera rekinn fjórum sinnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2018 16:00 Jose Mourinho. Vísir/Getty
Ein af fróðlegum samantektum dagsins um fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United snýr að því hversu mikið Jose Mourinho hefur fengið borgað frá félögum eftir að þau ráku hann. Portúgalski knattspyrnustjórinn hefur nefnilega hagnast verulega á því að vera rekinn eins undarlega og það hljómar. Alls hefur Jose Mourinho verið rekinn fjórum sinnum á ferlinum, tvisvar frá Chelsea, einu sinni frá Real Madrid og nú síðast frá Manchester United. Mourinho skrifaði undir nýjan samning við Manchester United 25. janúar á þessu ári og var nýi samingurinn í gildi til ársins 2020 með möguleika á eins árs framlengingu. United mun þurfa að borga upp samninginn til að gera upp við fyrrum knattspyrnustjóra sinn og sú upphæð er sögð verða 24 milljónir punda samkvæmt samantekt Sky Bet.How much Mourinho has earned being sacked: 09/07 - Chelsea - £18m 05/13 - Real Madrid - £0 12/15 - Chelsea - £9.5m 12/18 - Man Utd - £24m Total = £51.5m pic.twitter.com/mpUfaWIuGi — Sky Bet (@SkyBet) December 18, 2018Manchester United á því eftir að borga Jose Mourinho 3,7 milljarða íslenskra króna. Real Madrid slapp óvenjuvel og skuldaði Jose ekki neitt eftir að Portúgalinn hætti þar. Kannski ekkert skrýtið að það sé áhugi þar að fá hann aftur. Chelsea borgaði Mourinho aftur á móti samanlagt 27,5 milljónir punda við þessi tvö starfslok en það eru meira en 4,2 milljarðar. Samtals hefur Jose Mourinho því fengið 51,5 milljónir punda frá félögum sem ráku hann en það eru 7,9 milljarðar íslenskra króna. Portúgalinn þarf því ekki að kvarta mikið yfir öllum þessum brottrekstrum ekki síst þar sem að hann virðist alltaf fá nýtt starf fljótlega á eftir.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Sjá meira