Upphitun: Meistarabölvun á Brúnni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 8. desember 2018 06:00
Manchester City freistar þess að brjóta „meistarabölvunina,“ og fara með sigur af Stamford Bridge í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Ríkjandi Englandsmeistarar hafa ekki unnið Chelsea á heimavelli þeirra bláklæddu Stamford Bridge síðan Manchester United vann 3-0 sigur í apríl 2002. Pep Guardiola og hans menn hafa hins vegar ekki tapað leik í úrvalsdeildinni á tímabilinu og aðeins tapað stigum í tveimur leikjum. Þeir mæta til Lundúna í síðdegisleik dagsins en helstu keppinautar City um toppsætið, Liverpool, byrjar daginn í Bournemouth í hádeginu. Bournemouth náði loksins að vinna í vikunni eftir tapleikjahrinu og er jafnt Manchester United og Everton að stigum um miðja deild. United á leik klukkan 15:00 gegn nýliðum Fulham sem sitja á botni deildarinnar. Fyrirfram ættu það að vera auðveld stig á töfluna fyrir Jose Mourinho og rauðu djöflana. Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Einar Gunnarsson verða báðir í eldlínunni á sama tíma, Burnley mætir Brighton og Cardiff fær Southampton í heimsókn. Deginum lýkur á kvöldleik Leicester og Tottenham í Leicester. Tottenham er í þriðja sætinu, átta stigum á eftir City á toppnum en í harðri baráttu við Chelsea og Arsenal um sæti í topp fjórum.Leikir dagsins: 12:30 Bournemouth - Liverpool, beint á Stöð 2 Sport 15:00 Arsenal - Huddersfield 15:00 Burnley - Brighton 15:00 Cardiff - Southampton 15:00 Manchester United - Fulham, beint á Stöð 2 Sport 15:00 West Ham - Crystal Palace 17:30 Chelsea - Manchester City, beint á Stöð 2 Sport 19:45 Leicester - Tottenham, beint á Stöð 2 Sport
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Sjá meira