Özil hlær að gagnrýnendum Arnar Geir Halldórsson skrifar 26. október 2018 08:00 Mesut Özil vísir/getty
Mesut Özil átti frábæran leik fyrir Arsenal síðastliðinn mánudag þegar hann var allt í öllu í góðum 3-1 sigri liðsins á Leicester. Þrátt fyrir það voru ekki allir heillaðir því Graeme Souness, fyrrum leikmaður og þjálfari Liverpool og nú sjónvarpsmaður hjá Sky Sports segir að ekki sé hægt að tala um Özil sem leikmann sem breytir leikjum vegna þess að hann hverfi of oft í stærri leikjum. Özil hefur oft verið mikið á milli tannanna á knattspyrnuáhugamönnum og er raunar frekar umdeildur knattspyrnumaður. Hann segir að svoleiðis hafi það alltaf verið og það truflar ekki kappann. „Ég hlæ bara að þessu. Ég er ekki einn af yngri leikmönnunum og ég byrjaði að spila sem atvinnumaður þegar ég var 16 eða 17 ára og þetta hefur alltaf verið svona. Annað hvort líkar fólki við mig eða ekki,“ segir Özil sem kveðst ekki hlusta á umræðuna í fjölmiðlum. „Ég hlusta ekki á þetta fólk. Ég hlusta bara á þjálfarann og mitt fólk sem getur sagt hlutina beint fyrir framan andlitið á mér. Þannig að, að sjálfsögðu, ef ég spila illa þá veit ég það jafn vel og þegar ég spila vel.“ „Það mikilvægasta er að þjálfarinn getur hjálpað mér. Ef ég geri mistök segir hann það við mig, við getum talað saman og þannig get ég bætt mig í framtíðinni.“ „En þegar fólk er bara að segja slæma hluti um mig til að komast að í blaðinu þá veit ég það og mér er alveg sama um það fólk,“ segir Özil.
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn „Restin var bara ekki með“ Fótbolti Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Handbolti Fleiri fréttir Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Sjá meira